Fyrri aukaspurning:
Hvar er kirkjan á myndinni hér að ofan?
***
Aðalspurningar:
1. Úllen dúllen doff ... hvað kemur svo?
2. Í hvaða þjóðsögu segir frá hyskinni húsmóður sem nennti ekki að vefa og reyndi að koma vinnunni yfir á aðra?
3. Fjarðará fellur til sjávar í kunnum firði — eins og nafn árinnar gefur raunar til kynna. Fjörðurinn er fyrir austan. Hvað heitir hann?
4. Í hvaða landi er Fumio Kishida nýorðinn forsætisráðherra?
5. Rodin hét franskur myndhöggvari sem andaðist 77 ára árið 1917. Hvað heitir langfrægasta höggmynd hans?
6. Við hvaða innhaf stendur borgin Arkhangelsk í Rússlandi?
7. Hvar andaðist Napóleon Bónaparte fyrir réttum 200 árum?
8. Jóhanna af Örk — eins og hún er gjarnan kölluð á Íslandi — var frönsk stúlka sem brennd var á báli fyrir afskipti sín af stríðsrekstri í ... hvaða stríði?
9. Kryddið kanill er unnið úr hvaða jurtahluta?
10. München er höfuðborg hvaða fylkis í Þýskalandi?
***
Síðari aukaspurning:
Hvaða starfi gegnir þetta fólk?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Kikke lane koff.
2. Gilitrutt.
3. Seyðisfjörður.
4. Japan.
5. Hugsuðurinn.

6. Hvítahafið.
7. St.Helenu.
8. Hundrað ára stríðinu.
9. Trjáberki.
10. Bæjaralandi.
***
Svör við aukaspurningum:
Þetta er Selfosskirkja!
Þetta eru bandarískir Hæstaréttardómarar. Þau heita Gorsuch og Barrett en óþarfi er að vita það.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir