565. spurningaþraut: Af hreinni tilviljun er spurt hér um kjötrétti tvo

Hér er komin fyrri auka­spurn­ing:

Ungi mað­ur­inn hér að ofan var hand­tek­inn árið 1961, grun­aður um að hafa ólög­legt vopn undir höndum. Hvað hét hann og heitir enn?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1790 varð Ólafur nokkur æðsti emb­ætt­is­maður Dana á Íslandi og var hann fyrsti Íslend­ing­ur­inn sem gegndi því til­tekna emb­ætti. Ólafur og þó aðal­lega afkom­endur hans not­uðu danska útgáfu af föð­ur­nafni hans sem ætt­ar­nafn, og urðu helsta valda­stétt lands­ins næstu öld­ina. Hvernig var þessi danska útgáfa af föð­ur­nafni Ólafs?

2.  En hvað kall­að­ist starfið sem Ólafur tók að sér 1790?

3.  Við hvaða borg er kjöt­rétt­ur­inn snit­sel oft kenndur?

4.  Um hvaða slóðir á Íslandi siglir ferjan Baldur alla jafna?

5.  En hvar á Íslandi hefur íþrótta­fé­lagið Skalla­grímur aðsetur?

6.  Hvaða höf­undur skrif­aði um rétt­ar­höld yfir manni sem var hand­tek­inn og dreg­inn fyrir dóm­stól án þess að nokkurn tíma kæmi fram hver glæpur hans átti að vera?

7.  Hvað nefn­ist þjóð­ar­réttur Ungverja: smátt skornir kjöt­bitar í sósu með ýmis­legu græn­meti?

8.  Hvað hét kærast­inn hennar Bonnie?

9.  Hvernig á hárið á Marge Simpson á lit­inn?

10.  Hver var örlaga­rík­asti atburð­ur­inn sem varð­aði Ísland og gerð­ist 7. júlí 1941?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er sú hin vin­sæla söng­kona á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Steph­en­sen.

2.  Stift­amt­maður.

3.  Vín­ar­borg.

4.  Breiða­fjörð.

5.  Borg­ar­nes.

6.  Kafka.

7.  Gúllas.

8.  Clyde.

9.  Blátt.

10.  Banda­ríkin tóku við her­vernd Íslands.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er film­stjarnan Al Pacino.

Á neðri mynd­inni er Adele.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár