555. spurningaþraut: Hvað heita þau blóm sem myndina prýða?

555. spurningaþraut: Hvað heita þau blóm sem myndina prýða?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir jurtin sem blómin ber, þau er prýða mynd­ina hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í 554 daga hef ég streist á móti þess­ari spurn­ingu en nú hlýt ég loks að láta undan: Í hvaða ríki er höf­uð­borgin Ant­an­an­arivo?

2.  Hver urðu enda­lok rúss­neska skáld­mær­ings­ins Alex­and­ers Púsjkins 1837?

3.  Einu sinni var reynt að búa til ramm­ís­lensk nöfn á útlenska ávexti, og eitt orð af því tagi var bjúgaldin. Yfir hvað átti að nota það?

4.  En hvað var gló­aldin?

5.  Ég get ekki stillt mig: Hvað var gul­aldin?

6.  Hvað heitir nyrsti skagi Dan­merkur?

7.  Hvaða hljóm­sveit sendi árið 1979 frá sér plöt­una The Wall?

8.  Johnny Logan er eini mað­ur­inn sem hefur unnið Eurovision tvisvar. Nefnið annað af sig­ur­lögum hans.

9.  Íslensk leik­kona og leik­stjóri fékkst við margt á starfsæv­inni og fór að fást við mál­ara­list á miðjum aldri. Hún veikt­ist af MND-sjúk­dómnum og vakti athygli á sjúk­dómnum áður en hún lést langt fyrir aldur fram. Hvað hét hún? 

10.  Hvað heitir nýr for­sæt­is­ráð­herra Noregs?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Roskinn karl­maður messar yfir læri­sveinum, sem virð­ast harmi lostnir og líta undan þegar karl­inn teygir sig eftir bikar sem að honum er réttur. Hvað heitir karl­inn?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Madaga­skar.

2.  Hann var drep­inn í ein­vígi.

3.  Banana.

4.  App­el­sína.

5.  Sítróna.

6.  Skagen.

7.  Pink Floyd.

8.  Lögin hétu What's Another Year og Hold Me Now.

9.  Edda Heiðrún Backman.

10.  Jonas Gahr Støre. Hvaða sam­setn­ingar af nöfnum hans sem vera skal eru réttar í þetta sinn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru nellikur.

Á neðri mynd­inni má sjá heim­spek­ing­inn Sókrates rétt í þann mund að hann drekkur eit­ur­bik­ar­inn sem hann var dæmdur til að tæma fyrir að hafa „spillt ung­dómnum“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár