556. spurningaþraut: Hvað heitir þessi ameríska ofurhetja?

556. spurningaþraut: Hvað heitir þessi ameríska ofurhetja?

Fyrri spurn­inga­þraut:

Á mynd­inni hér að ofan má sjá amer­íska ofur­hetju sem hefur gert garð­inn frægan í ýmsum myndum síðan 1962. Hvað heitir þessi hetja?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hann fædd­ist 1770 í Bonn í Þýska­landi og lést 1827, 56 ára gam­all. Hann er gjarnan tal­inn einn mesti snill­ingur tón­list­ar­heims­ins og lét ekki á sig fá þótt hann stríddi á síð­ari hluta ævinnar við vanda sem gerði honum erfitt fyrir á því sviði. Hvað hét hann?

2.  Blackjack er fjár­hættu­spil eitt sem þró­að­ist í Banda­ríkj­unum og Kanada en bresk útgáfa nefn­ist Pontoon. Þetta er eitt af vin­sæl­ustu fjár­hættu­spilum heims og kemur oft fyrir í bíó­myndum og sjón­varps­þáttum sem ger­ist í spila­vítum. Íslend­ingar þekkja lík­lega best nafnið á upp­runa­legu útgáf­unni, sem mun vera komin frá Frakk­landi. Hvað nefn­ist sú útgáfa?

3. Dairy Queen er banda­rískt fyr­ir­tæki sem einu sinni hafði fót­festu á Íslandi. Hver er þekktasta fram­leiðslu­vara Dairy Queen?

4.  Hvað heitir leik­ar­inn sem fór með hlut­verk Mad Max í nokkrum kvik­myndum en hefur síðan leikið til dæmis skoska frels­is­hetju, Hamlet Dana­prins og löggu í mynda­röð­inni Lethal Weapon? Hann hefur og leik­stýrt myndum um Jesú Krist og hina grimmu Asteka í Mexíkó. 

5.  Við hvaða borg er flug­völlur sem kenndur er við píanó­leik­ar­ann Frederic Chopin?

6.  En flug­völlur sem heitir eftir John Lennon?

7.  Kampavín er kennt við hérað í ... hvaða landi?

8.  Árið 1918 sögðu þrír keis­arar í Evrópu af sér emb­ætti. Einn þeirra bjó í Þýska­landi og hét ... ?

9.  Keisari númer tvö bjó ívið sunnar en sá þýski, þótt ekki mun­aði miklu. Hvað hét hann?

10. Þriðji keis­ar­inn, sem sagði af sér 1918, hann bjó ögn sunnar og austar en hinir. Sumum fannst að landið hans verð­skuld­aði varla að halda uppi þjóð­höð­ingja með keis­ara­nafn, en hann hafði nú kallað sig keis­ara samt. Hvað land var hér um að ræða?

***

Seinni spurn­inga­þraut:

Hvað heitir hljóm­sveitin á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Beethoven.

2.  21.

3.  Rjómaís.

4.  Mel Gibson.

5.  Varsjá.

6.  Liverpool.

7.  Frakk­landi.

8.  Vil­hjálmur.

9.  Karl — hann var keis­ari í Aust­ur­ríki-Ung­verja­landi.

10. Búlgaríu.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Ofur­hetjan er vita­skuld Thor Odinson. Eða bara Þór, það dugar.

Hljóm­sveitin hét Lumm­urnar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár