Fyrri aukaspurning:
Hver er tónlistarmaðurinn sem blundar þarna á öxl Páls Óskars í myndbandi frá upphafi ársins?
***
Aðalspurningar:
1. Ýmsir fæddust og víða um heim þann 20. apríl 1889. En hver skyldi vera langþekktastur þeirra?
2. Í hvaða landi er höfuðborgin Djakarta?
3. Hvaða samtök stóðu fyrir því að sökkva íslenskum hvalveiðibátum árið 1986?
4. Marcia Fudge, Jennifer Granholm, Deb Haaland, Gina Raimondo og Janet Yellen — hvað eiga þessar fimm konur sameiginlegt um þessar mundir?
5. Lenya Rún Taha Karim er ein þeirra þingmanna sem virtust hafa náð kjöri eftir kosningarnar í september en voru svo skildir eftir í lausu lofti eftir endurtalningu í norðvesturkjördæmi. Fyrir hvaða flokk var hún í framboði?
6. Lenya Rún er fædd á Íslandi og hefur búið hér alla tíð. Foreldrar hennar eru hinsvegar af hvaða þjóðerni?
7. Kannski eru til fleiri en ein Krossá á Íslandi. En um hvaða þekkta svæði rennur þá sú stærsta þeirra?
8. Hvaða ár lentu menn fyrst á tunglinu?
9. Hvaða ríki tilheyrir Balí?
10. Hver var forsætisráðherra á undan Katrínu Jakobsdóttur?
***
Seinni aukaspurning:
Hver er stjórnmálamaðurinn sem er þarna í heimsókn hjá Elísabetu Bretadrottningu fyrir nokkrum áratugum?

***
Svör við aðalspurningum:
1. Hitler.
2. Indónesíu.
3. Sea Shepherd.
4. Þetta eru þær konur sem sitja í ríkisstjórn Bidens Bandaríkjaforseta.
5. Pírata.
6. Þau eru kúrdísk.
7. Þórsmörk.
8. 1969.
9. Indónesíu.
10. Bjarni Benediktsson.
***
Svör við aukaspurningum:
Tónlistarmaðurinn heitir Birnir.
Hér má sjá myndbandið sem um ræðir.
Stjórnmálamaðurinn hét Nicola Ceausescu einræðisherra Rúmeníu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.















































Athugasemdir