554. spurningaþraut: Filmstjarna, poppstjarna, fótboltastjarna og landkönnuðarstjarna

554. spurningaþraut: Filmstjarna, poppstjarna, fótboltastjarna og landkönnuðarstjarna

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað nefn­ist það fyr­ir­bæri sem myndin hér að ofan sýnir?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Árið 1519 lagði upp leið­angur sem sigldi á end­anum kringum hnött­inn. Leið­ang­urs­stjór­inn komst ekki alla leið, en hvað hét hann?

2.  Hvað átti sér stað í fyrsta skipti í sög­unni í bænum Kitty Hawk í Norður Karólínu í Banda­ríkj­unum þann 17. des­em­ber 1903?

3.  Hvað hrjáir þá sem þjást af svo­nefndu Münchausen-heil­kenni?

4.  Tveir firðir skera Vest­firð­ina næstum því frá meg­in­hluta Íslands. Annar þeirra gengur inn úr Breiða­firði og heitir ...?

5.  Hinn fjörð­ur­inn gengur aftur á móti inn úr Húnaflóa og heitir ...?

6.  Frá hvaða landi kemur fót­bolta­snill­ing­ur­inn Mohammed Salah sem gerir garð­inn frægan með lið­inu Liverpool frá Englandi?

7.  Chris Martin heitir mús­í­k­ant einn. Hann er aðal­mað­ur­inn í afar vin­sælli hljóm­sveit sem sló í gegn árið 2000 með lag­inu Yellow af plöt­unni Parachute. Síðari plötur hljóm­sveit­ar­innar hafa margar náð miklum vin­sældum, svo sem X&Y, Viva la Vida og Mylo Xyloto. Hljóm­sveitin heitir ...?

8.  Martin þessi var um skeið kvæntur film­stjörnu sem var ein sú vin­sælasta á síð­asta ára­tug 20. aldar og fékk þá meðal ann­ars Ósk­arsverð­laun fyrir hlut­verk sitt í mynd­inni Shakespe­are in Love. Hún hét einnig í myndum eins og Emmu, Seven og The Talented Mr. Ripley. Síðan hefur hún leikið minna en dúkk­aði nokkuð óvænt upp í hlut­verki Pepper Potts í ofur­hetju­myndum um Iron Man, Avengers, Spiderman og fleiri. 

9.  Í hvaða landi er borgin Hanoi?

10.  Hvað eru mörg kíló í einu tonni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Karl­arnir hér að neðan eru að spila á ... hvaða hljóð­færi?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Magellan.

2.  Fyrsta flug manna á vél­knú­inni flug­vél. Þarna voru Wright-bræður á ferð en ekki er nauð­syn­legt að muna nöfn þeirra.

3.  Ólækn­andi þrá eftir að gera sér upp sjúk­dóma vís­vit­andi. Vís­vit­andi er hér lyk­il­orð — þetta er sem sagt ekki ómeð­vituð ímynd­un­ar­veiki.

4.  Gils­fjörður.

5.  Bitru­fjörður.

6.  Egifta­landi.

7.  Coldplay. Hér er hlekkur á lagið Yellow.

8.  Gwyneth Paltrow.

9.  Víetnam.

10.  Þúsund.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin sýnir lotu­kerfið — skrá yfir frum­efni.

Á neðri mynd­inni spila karlar á básúnur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár