Meðlimir í kjörstjórn lýsa óvarlegri meðferð atkvæða í kosningunum

Geir Guð­munds­son og Hans Benja­míns­son, með­limir í kjör­stjórn Kópavogs hafa gefið munn­lega grein­ar­gerð um ann­marka sem þeir fundu í með­höndlun atkvæða í Kópavogi og ætla sér að skila inn skrif­legri grein­ar­gerð til yfir­kjör­stjórnar Kópavogs um sama efni.

Meðlimir í kjörstjórn lýsa óvarlegri meðferð atkvæða í kosningunum
Sýslu­maður inn­sigl­aði kjör­kassa með lím­bandi Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn í Kópavogi segir sýslu­mann­inn í Kópavogi hafa virt óskir kjör­stjórn­ar­innar að vettugi um að inn­sigla kjör­kassa. Þess í stað var notað grátt lím­band.

Geir Guð­munds­son segir í sam­tali við Stundina að hann og vara­maður hans í kjör­stjórn Kópavogs hafi fundið þó nokkra ann­marka við með­höndlun atkvæða fyrir alþing­is­kosn­ingar. Meðal þeirra ann­marka er að sýslu­maður hafi virt óskir kjör­stjórn­ar­innar að vettugi um að setja inn­sigli á kjör­kassa áður en hann var fluttur og sett þess í stað grátt lím­band yfir rif­una á kjör­kass­anum. Þá var einnig inn­sigli á geymslu­stað utan­kjör­fund­ar­at­kvæða rofið án þess að umboðs­maður lista í kjör­dæm­inu væri við­staddur eða annar eft­ir­lits­að­ili og svo að utan­kjör­funda­at­kvæði hafi verið flutt opin í opnum kössum til kjör­deilda.

Af þessum ástæðum og fleiri seg­ist Geir ekki vera full­viss um að farið hafi verið að lögum við með­höndlun atkvæða. Hann seg­ist þó ekki van­treysta fólk­inu sem stóð að þessu en vilji bæta ferlið fyrir næstu kosn­ingar. „En alveg full­komið traust hjá þeim sem eru í kjör­stjórn­inni og sáu um þetta allt saman. Við teljum að sé ekk­ert óeðli­legt í gangi en við viljum gjarnan að það sé hægt að segja með fullri vissu að það sé ekki hægt að nota þessar „loop holes“. Það er það sem við höfum áhyggjur af.“ 

Enginn umboðsmaður viðstaddur þegar innsiglið var rofið

Atburða­rásinni lýsir Geir þannig að fyrst hafi utan­kjör­fund­ar­at­kvæði borist í Smárann og þau læst inn í geymslu og inn­sigli sett á hurð­ina. Svo á föstu­deg­inum eftir hádegi hafði inn­siglið verið rifið af, allt tekið út úr her­berg­inu og byrjað hafi verið að flokka utan­kjör­fund­ar­at­kvæði niður á kjör­deildir í öðrum sal. 

Þegar flokk­un­inni var lokið voru hin flokk­uðu utan­kjör­fund­ar­at­kvæði sett í kassa fyrir hverja kjör­deild og kass­arnir settir inn í geymslu í kössum sem voru ekki inn­sigl­aðir, geymsl­unni verið læst og inn­sigli sett á hurð­ina og áritað af odd­vita kjör­stjórnar. Morg­un­inn eftir, eða á kjör­degi, athug­aði sá sem hafði áritað inn­siglið hvort að inn­siglið á dyrum geymsl­unnar væri það sama en svo var ekki. 

„Ég get stað­fest að allan tím­ann hafði kjör­stjórn aðgang að her­berg­inu sem og hefði mögu­lega mörgun sinnum opnað dyrnar gert eitt­hvað þar inni, og sett síðan nýtt inn­sigli á dyrnar.“

Geir fór því að kanna í hverju mis­ræmið fólst og skýr­ingin reynd­ist vera sú að fleiri utan­kjör­fund­ar­at­kvæði sem voru greidd sama dag og hin höfðu verið flokkuð bár­ust seint um kvöldið og þá var her­bergið opnað af tveimur aðal­mönnum í kjör­stjórn og hin nýju utan­kjör­fund­ar­at­kvæði sett inn með hinum flokk­uðu. Her­berg­inu var svo aftur læst og dyrnar svo inn­sigl­aðar með nýju inn­sigli og það und­ir­ritað af odd­vita kjör­stjórnar. Enginn umboðs­maður eða eft­ir­lits­að­ili var við­staddur þegar inn­siglið var rifið á föstu­dags­kvöld­inu.

Að mati Geirs hefði verið æski­legt að hafa umboðs­mann við­staddan þegar inn­siglið var rifið og raunar í „öllum til­vikum“ þegar inn­siglið var rofið. 

Í færslu Katrínar Odds­dóttur á Facebook skrif­aði Geir ummæli sem svari við spurn­ingu Jón Þórs Ólafs­sonar, umboðs­manni Pírata í kjör­dæm­inu, um það hvort það væri ekki ljóst af þessu að „ein­hver hafði aðgang að atkvæð­unum alla nótt­ina?“ Geir svarar:

„Jón Þór ég get stað­fest að allan tím­ann hafði kjör­stjórn aðgang að her­berg­inu sem og hefði mögu­lega mörgun sinnum opnað dyrnar gert eitt­hvað þar inni, og sett síðan nýtt inn­sigli á dyrnar. Það er eitt af því sem mér finnst veikasti punktur kosn­ing­anna. Auðvelt er að svappa atkvæða umslögum í opnum sendi umslögum.“

Ekkert innsigli á kjörkassa frá sýslumanni

Annað sem Geir minnt­ist á í munn­legri grein­ar­gerð sinni var það að kjör­kass­arnir sem inni­héldu utan­kjör­fund­ar­at­kvæði frá sýslu­manni voru ekki inn­sigl­aðir þrátt fyrir að kjör­stjórnin hafði beðið um það. „Sýslu­maður virti það ekki og setti bara grátt lím­band yfir. Það hefði getað verið átt við það,“ segir hann. 

Þá kom það Geiri einnig á óvart að utan­kjör­fund­ar­at­kvæðin hafi verið flutt „opin“ og „í opnum kössum til kjör­deilda“. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregðast við ásökunum á hendur frambjóðanda Flokks fólksins
FréttirAlþingiskosningar 2021

Inga Sæland vill ekki bregð­ast við ásök­unum á hendur fram­bjóð­anda Flokks fólks­ins

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, seg­ist ekki vilja bregð­ast við tölvu­pósti þar sem fram­bjóð­andi flokks­ins er sak­aður um að hafa brotið ítrekað á konum í gegnum tíð­ina. Hún seg­ist ekki vita um hvað málið snýst og ætli því ekki að aðhaf­ast. Hún seg­ist þó hafa fengið ábend­ingu um sama mál nokkrum dögum fyrir kosn­ingar. Mis­mun­andi er eftir flokkum hvaða leiðir eru í boði til þess að koma á fram­færi ábend­ingu eða kvörtun um með­limi flokks­ins. Flokkur fólks­ins er til að mynda ekki með slíkar boð­leiðir.
Meðlimur í kjörstjórn kærir vegna „gruns um kosningasvik“ í Suðvesturkjördæmi
Fréttir

Meðlimur í kjör­stjórn kærir vegna „gruns um kosn­inga­svik“ í Suð­vest­ur­kjör­dæmi

Geir Guð­munds­son, með­limur í kjör­stjórn Kópavogs, hefur lagt fram kæru til lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vegna fram­kvæmd kosn­inga í Suð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann vill að lög­regla rann­saki kjör­gögn áður en þeim er eytt, vegna full­yrð­inga umboðs­manns Sós­í­alista­flokks­ins um mis­mun­andi stærð kjör­seðla.
Þrír starfsmenn Hótels Borgarness tóku myndir í tómum talningasal
Fréttir

Þrír starfs­menn Hótels Borg­ar­ness tóku myndir í tómum taln­inga­sal

Starfs­menn Hótel Borg­ar­nes höfðu óheftan aðgang að óinn­sigl­uðum atkvæðum í auðum sal hót­els­ins meðan yfir­kjör­stjórn var ekki á staðnum eftir að fyrstu taln­ingu lauk. Lög­reglan getur ekki stað­fest hvort að starfs­menn­irnir hafi farið að svæð­inu sem kjör­gögnin voru geymd vegna þess að starfs­menn­irnir hverfa úr sjón­ar­sviði eft­ir­lits­mynda­véla. Þrír starfs­menn tóku myndir af salnum og þá atkvæðum.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
6
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár