Þorgerður Katrín varar við íhalds-hægri stjórn

Viðreisn telur að teng­ing krónu við evru sé besta og fljót­virkasta tækið sem hægt er að beita í hag­stjórn­ar­málum til að bæta hag almenn­ings og fyr­ir­tækja. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, for­maður Við­reisnar, gagn­rýnir sitj­andi rík­is­stjórn fyrir kyrr­stöðu og vörð um sér­hags­muni. Hún vill færa stjórn­málin inn á hina frjáls­lyndu miðju.

Tenging krónu við evru væri til þess fallin að auka geng­is­stöð­ug­leika og auka fyr­ir­sjá­an­leika í íslensku efna­hags­lífi. Þetta er mat Þor­gerðar Katrínar Gunn­ars­dóttur, for­manns Við­reisnar, sem segir að nú séu tæki­færi til að ráð­ast í þá aðgerð.

„Við erum að benda á leiðir til að gera mat­ar­körf­una ódýr­ari, til að gera hús­næð­is­lánin þannig að þau slygi ekki fólk,“ segir Þor­gerður og segir jafn­framt að ef Viðreisn kom­ist í þá stöðu að taka þátt í við­ræðum um rík­is­stjórn­ar­myndun að afloknum kosn­ingum muni flokk­ur­inn ekki gefa eftir í Evr­ópu­sam­bands­málum með sama hætti og gerð­ist við myndun rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Bjartrar fram­tíðar og Við­reisnar eftir kosn­ing­arnar 2016.

Í við­tali í Kosn­inga­stund­inni leggur Þor­gerður Katrín jafn­framt mikla áherslu á að kerf­is­breyt­ingar í sjáv­ar­út­vegi, upp­boðs­leið og auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá séu mál sem flokk­ur­inn muni leggja höf­uð­á­herslu á.

Þor­gerður Katrín lýsir því jafn­framt að sú gagn­rýni sem hún mátti sæta eftir hrun hafi að mörgu leyti verið rétt­mæt. Hins vegar hafi þar verið gengið yfir strikið þegar setið var um heim­ili hennar og fjöl­skylda henna, börnin, sett í upp­nám. „Mér fannst það erfitt, ég held að það sé það sem situr mest í mér.“

Gagnrýnir meðalmennsku ríkisstjórnarinnar

Þor­gerður Katrín gagn­rýnir sinn gamla flokk, Sjálf­stæð­is­flokk­inn, harð­lega fyrir að vera flokkur kyrr­stöðu og að hann taki stöðu með sér­hags­munum fram yfir almanna­hags­muni. Sitjandi rík­is­stjórn fær sömu ein­kunn. Sorglegt sé að horfa upp á jafn ein­stakan stjórn­mála­mann og Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra og for­mann Vinstri grænna, sem Þor­gerður Katrín seg­ist bera ómælda virð­ingu fyrir, nota ekki sína póli­tísku inn­eign sterkar en hún hafi gert. „Meira að segja í lofts­lags­málum erum við að horfa upp á með­al­mennsku.“

Spurð hvort hún úti­loki í þessu ljósi að Viðreisn gangi til liðs við núver­andi rík­is­stjórn­ar­flokka að loknum kosn­ingum segir Þor­gerður Katrín að hún úti­loki ekki sam­starf við neinn en muni beita sér fyrir að stjórn­málin fær­ist inn á hina frjáls­lyndu miðju. „Með fullri virð­ingu þá eru Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hvað fjærst okkur á hinu póli­tíska lit­rófi,“ segir Þor­gerður Katrín og bætir við að þó verið sé að vara við vinstri stjórn nú um stundir gjaldi hún var­hug við að fara í hina átt­ina. „Ég vil vara sér­stak­lega við íhalds-hægri stjórn. Það er eitt­hvað sem er jafn­vont og últra vinstri­st­jórn.“

Glerþak yfir öllum málaflokkum í Sjálfstæðisflokknum

Í nýlegri skoð­ana­könnun mæld­ist Viðreisn með 11,7 pró­senta stuðn­ing sem myndi skila flokknum um sjö þing­mönnum í alþing­is­kosn­ing­unum undir lok þessa mán­aðar. Í síð­ustu kosn­ingum 2017 fenguð þið 6,9 pró­sent greiddra atkvæða og fjóra þing­menn kjörna. Hver eru þín við­brögð við þess­ari og þeim könn­unum sem hafa verið að koma Þor­gerður?

„Þetta eru skoð­ana­kann­anir, það sem skiptir mestu máli er hvað kemur upp úr köss­unum 25. sept­em­ber. Við stefnum að því að reyna að fá það mikið fylgi til að vera það afl sem þarf að okkar mati til að breyta í íslenskum stjórn­málum, að við förum frá þess­ari kyrr­stöðu.“

Hvers vegna snerir þú aftur á þing?

„Það er kannski að póli­tíkin hverfur aldrei úr manni. Ég  þurfti að hætta 2013, ég taldi það rétt, þurfti að stíga til hliðar og end­ur­meta og end­ur­skoða sjálfa mig. Ég fann að ég var ekki alveg til­bú­inn á end­anum til þess að hætta. En ég vildi samt ekki fara aftur inn án þess að skynja það að ég gæti ekki orðið afl til að breyta. Ég hef oft lýst því þannig að mér finnst ég vera frjáls­ari í dag heldur en ég hef verið áður í póli­tík.“

Þér fannst þú þá ekki hafa þetta frelsi á meðan þú varst í Sjálf­stæð­is­flokknum?

„Ég hef stundum lýst því þannig að gler­þakið er ekki bara í jafn­rétt­is­málum í þeim flokki heldur gler­þakið er yfir alla mála­flokk­ana. Þú færð frelsi upp að þessu gler­þaki. Ég fann fyrir þessu gler­þaki og ég skynj­aði að það var ekk­ert mikið að breyt­ast.“

„Þú færð frelsi upp að þessu gler­þaki“

Þor­gerður Katrín sagði af sér sem vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins í apríl 2010, eftir umfjöllun í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um lán­töku hennar og eig­in­manns hennar, Krist­jáns Arasonar, og fór í tíma­bundið leyfi frá þing­störfum. Hún gaf ekki kost á sér í kosn­ing­unum 2013.

„Krafan er sú að fólk hætti og segja af sér. Þá gerir maður það og ég hætti 2013 en ég ætla samt að vona að við séum þannig sam­fé­lag að þegar fólk stígur til hliðar og fer í svona ákveðna sjálfs­rýni að fólk fái þá svig­rúm, sveigj­an­leika, til að byrja aftur. Annars er það mjög skrýtið sam­fé­lag ef það er ekki þannig. Það verður þá til að að fólk í póli­tík munu ekki axla ábyrgð. Það mætti kannski fleiri gera það þá.“

Sorglegt að fólk noti ekki sína pólitísku inneign betur

Nú var umræðan samt mjög óvægin á sínum tíma, bæði sættir þú harðri gagn­rýni, fjöl­miðla og almenn­ings og svo varðst þú  líka fyrir upp­nefnum, ljótum nöfnum. Þurftir þú ekki að hugsa það vel og vand­lega hvort þú værir til­búin að snúa aftur inn á þetta svið?

„Gagn­rýnin var með réttu að mörgu leyti, maður verður bara að horfast í augu við það. Sumt var ekki endi­lega rétt­látt en annað var bara eitt­hvað sem við þurftum að horfast í augu við. Þetta var hluti af því sem maður íhug­aði þegar ég kom inn aftur: Er ég að leggja meira álag á börnin, sem nátt­úr­lega urðu fyrir ákveðnu aðkasti á sínum tíma. En um leið þá hugs­aði ég: Ef ég geri þetta þá er verið að stjórna mér með ótt­anum og það er hluti af því, hvort sem er ég eða aðrir, að fólk í póli­tík láti ekki hræða sig frá því sem sann­fær­ingin er.

Ég hef ómælda ánægju af póli­tík. Ég finn að ég hef kraft­inn og ég finn líka að það er hægt að breyta og það er það sem mér finnst svo sorg­legt þegar við horfum upp á póli­tík­inni í dag og við horfum upp á jafn ein­stakan stjórn­mála­mann, sem ég ber mjög mikla virð­ingu, ómælda virð­ingu fyrir, eins og Katrínu Jak­obs­dóttir, þegar hún notar ekki sína póli­tísku inn­eign betur og sterkar en hún gerir núna. Meira að segja í lofts­lags­málum erum við að horfa upp á með­al­mennsku.“

Þú segir að gagn­rýni sem þú fékkst hafi að hluta til verið rétt­mæt,þannig að þú hefur vænt­an­lega gert ein­hver mis­tök í þinni fram­göngu á þessum árum?

„Ég er búinn að fara marg­fara yfir þetta í við­tölum og geri það að sjálf­sögðu áfram. Ég held að það hafi verið ákveðin með­virkni almennt í stjórn­kerf­inu og það er það sem ég hef sagt áður og farið yfir og er að reyna að nýta mér einmitt núna þegar maður hugsar um alls konar hluti sem eru núna að ger­ast.

Ég sagði ein­hvern tím­ann í ein­hverju yfir­læt­iskasti að ein­hver maður þyrfti að fara í end­ur­menntun. Ég held að ég hafi þurft, og hef sagt það við sjálfa mig, ég þurfti bara svo­lítið á henni sjálf að halda.“

Þannig að allt þetta er lær­dómur?

„Ég held það. Fólki verða á mis­tök og það er í lagi svo lengi sem þú reynir að læra af því og horfast í augu við það og ekki hvít­þvo sjálfan þig. Var sumt erfitt og óvægið? Já, mér fannst það erfitt þegar fólk var fyrir utan heim­ili mitt og setti fjöl­skyldu mína í ákveðið upp­nám, ekki síst dóttur mína sem er varn­ar­laus. Mér fannst það erfitt, ég held að það sé það sem situr mest í mér.“

Krafan er réttlæti

Þú hefur tekið upp umræðu á Alþingi um vægi sér­hags­muna fram yfir almanna­hags­muni og talað um að þess­ari rík­is­stjórn sem situr núna hafi ekki aðeins mis­tek­ist að koma í veg fyrir að þessir hópar væru við völd, heldur að þeim hafi verið veitt þeim skjól. Hvað áttu við með því?

Er það ekki nokkuð ljóst? Eigum við að nefna auð­linda­á­kvæði? Ég studdi ein­dregið þá vinnu sem sem Katrín Jak­obs­dóttir leiddi á meðal for­manna. Síðan kemur í ljós að íhalds­flokk­arnir sem eru með henni, sem sagt Framsókn og Sjálf­stæð­is­flokkur og Mið­flokkur, vilja ekki tíma­bind­ingu samn­inga.

Viljum við í Viðreisn koll­varpa kerf­inu? Nei, það viljum við ekki af því að við erum þeirrar skoð­unar, ólíkt til dæmis Pírötum og Sam­fylk­ingu, að kerfið sé hluti af því að auka hag­kvæmni og skil­virkni innan sjáv­ar­út­vegs­ins. En það verður ekki sundur skilið frá kröf­unni um rétt­læti, frá kröf­unni um sann­girni, um það að þjóðin fái aukið gjald fyrir einka­af­not til útgerð­anna af auð­lind­inni.

Við sjáum að hið opin­bera fisk­verð er 30 til 40 pró­sentum lægra heldur en það sem sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækin eru að greiða. Það þýðir að núna er gjaldið eitt­hvað um 4,8 eða 4,9 millj­arðar. Það er minna heldur en tóbaks­gjaldið sem er greitt í rík­is­sjóð. Því er ekk­ert ólík­legt að þjóðin og ríkið geti fengið um níu millj­arða í stað­inn fyrir þessa 4,5 eða 5 millj­arða.

Þið boðið að það verði gert með upp­boðs­leið­inni. Hver er ávinn­ing­ur­inn af henni?

„Við viljum veita fyr­ir­sjá­an­leika fyrir grein­ina. Það er algjört lyk­il­at­riði. Tökum sem dæmi að við tökum fjögur pró­sent á hverju ári og það þýðir samn­ingar til 25 ára. Þá ertu tryggður með að minnsta kosti 96 pró­sent og þú bara bíður í á hverju ári.“

„Það er einn flokkur sem er að fá eitt­hvað 20 til 25 pró­sent sem er að stjórna því hvernig þetta er. Mér finnst það ekki boð­legt“

En hvers vegna á þá aðeins að bjóða hluta kvót­ans upp? Snýst það þá um þennan fyr­ir­sjá­an­leika?

„Já, ef þetta er allt kallað inn í einu, eins og eins og aðrir flokkar vilja, þá teljum við að það geti gengið af grein­inni dauðri og við viljum það ekki. Við viljum halda skil­virkni, við viljum halda hag­kvæmni en við viljum fá rétt­læti. Við viljum sann­girni og það er það sem við erum að fara með þess­ari leið.

Þegar ég var sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, beitti ég mér fyrir því að koma á þverpóli­tískri nefnd sem hóf vinnu í þessum mála­flokki. Allir flokkar, allir flokkar nema Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, ljáðu máls á því að setja á tíma­bundna samn­inga, að það yrðu gerðir samn­ingar um auð­lind­ina okkar. Og hvað ger­ist, enn og aftur? Það er einn flokkur sem er að fá eitt­hvað 20, 25 pró­sent sem er að stjórna því hvernig þetta er. Mér finnst það ekki boð­legt.“

Sjálfstæðisflokkurinn stoppar sátt um fiskveiðikerfið

Þannig að það er þessi skortur á frelsi sem þú varst að lýsa áðan í Sjálf­stæð­is­flokknum, sem líka kemur í veg fyrir að það sé gengið til verks í því að ganga frá málum í sátt við þjóð­ina um fisk­veiði­auð­lind­ina?

„Mér finnst það nokkuð nokkuð ein­boðið að meðan að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er ekki til­bú­inn til þess að stíga eitt eða neitt skref til að reyna að ná þess­ari sátt í stað­inn fyrir að fara alltaf í gaggið um það að auð­linda­gjaldið sé alltof hátt og sé að sliga allar útgerðir. Við sjáum að það er ekki rétt.“

En hvers vegna haldið þið að þið getið náð fram þessum breyt­ingum núna?

„Það er kannski af því að við þorum að tala fyrir þessu. Hugsunin á bak við kerfið, sjálf­bærni, kvóta­kerfið, fram­sal á milli, líka veð­setn­ing­ar­heim­ildir, þetta er allt saman af hinu góða. En þú getur ekki skilið hinn hlut­ann eftir. Við treystum okkur til að tala fyrir því að með núver­andi kerfi er hægt að vinna. Það er hægt að gera það sann­gjarn­ara og það er hægt að gera það þannig að bæði sjó­menn og þjóðin fái hlut.“

Er þetta grund­vall­ar­at­riði fyrir ykkur, upp á stjórn­ar­þátt­töku til dæmis?

„Já, þetta mun vega mjög þungt í okkar við­ræðum, ef og þegar við komumst í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður. Það verður mjög erfitt að hvika frá þess­ari afstöðu okkar um að við verðum að sjá sterk og stór skref tekin í þessa veru.“

Segir Sósílistaflokkinn vera að draga flokkana til vinstri

Þú ert búin að gagn­rýna Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyrir skort á frelsi og fram­sýni. Þú ert búinn að gagn­rýna sitj­andi stjórn fyrir að hún sé kyrr­stöðu­stjórn og sé ekki til­bú­inn til að ráð­ast í breyt­ingar. Útilokar þú það að starfa með þessum flokkum, að verða fjórði aðili í rík­is­stjórn þessar flokka?

„Ég hef sagt það ítrekað að ég úti­loka ekki sam­starf við neinn. Ég hins vegar mun beita mér fyrir því, hvort sem það eru Vinstri græn eða Sjálf­stæð­is­flokkur eða aðrir flokkar sem eru á jaðr­inum, að það verði meiri þungi inn á hina frjáls­lyndu miði. Þessi rík­is­stjórn starfar á jöðr­unum.“

„Þessi rík­is­stjórn starfar á jöðr­unum“

En tökum til dæmis Sós­í­alista­flokk­inn, sem boðar að brjóta eigi upp stór­út­gerð­irnar. Sérðu fyrir þér að þið getið unnið saman?

„Nei. Það liggur alveg ljóst fyrir og við Gunnar Smári erum búin að hitt­ast nokkrum sinnum í sam­tali eða kapp­ræðum og það er alveg ljóst að við erum flokkur sem við erum á önd­verðum meiði. Með fullri virð­ingu þá eru Mið­flokk­ur­inn og Sós­í­alista­flokk­ur­inn hvað fjærst okkur á hinu póli­tíska lit­rófi.

Mér finnst vinstrið að verða meira til vinstri og svo bara getið þið giskað á hvaða flokkar það eru sem  mér finnst vera meira til vinstri. Sós­í­alista­flokk­ur­inn er að draga flokk­anna til vinstri meira til vinstri. En ég er alger­lega á móti þeirri nálgun sem þau eru að boða í sjáv­ar­út­vegs­kerf­inu.“

En ef Sós­í­alista­flokkur Íslands er að draga vinstrið til vinstri, þrengir það þá ekki í raun og veru að ykkar val­kostum eftir kosn­ingar?

„Við höfum oft talað um hægri hag­stjórn, vinstri vel­ferð og við vorum að reyna að sam­þætta það. Það er verið að vara við vinstri stjórn. Já, það er alveg hægt, miðað við þá flokka­senu sem við erum að horfa upp á núna, að taka undir þá gagn­rýni. En ég vil líka halda um leið uppi þeirri gagn­rýni að ég vil vara sér­stak­lega við íhalds hægri stjórn. Það er eitt­hvað sem er jafn­vont og últra vinstri­st­jórn. Þunginn á hina frjáls­lyndu miðju, það er þangað sem sem við erum að beina okkar kröftum.“

Evrópumálin verða ekki gefin eftir

Árið 2016 mynd­aði Viðreisn rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum og Bjartri fram­tíð þar sem ykkar helstu mál voru gefin eftir, það er að segja aðild­ar­um­sókn að Evr­ópu­sam­band­inu og mark­aðs­verð fyrir fisk­veiði­auð­lind­ina. Hversu lík­legt er að Viðreisn fari aftur inn í rík­is­stjórn og gefi sín lyk­il­mál eftir?

„Ég held að við lærum einmitt svo­lítið af þeim rík­is­stjórn­ar­við­ræðum en við verðum líka að átta okkur á því að þetta var eftir mjög mikið þóf. Þetta var mjög erfið stjórn­ar­myndun og hún var bara með eins manns meiri­hluta. Það er alltaf erfitt. Ég held einmitt að við lærum af því að það kann að vera að þessi eft­ir­gjöf sem fólki fannst vera til dæmis varð­andi Evr­ópu­málin í því stjórn­ar­sam­starfi hafi verið ein­fald­lega of mikil.“

Hversu mik­il­vægt er Evr­ópu­sam­bandið fyrir Viðreisn? Mynduð setja það fyrir ykkur við stjórn­ar­myndun.

„Við gerum okkur alveg grein fyrir því að þetta er stórt og mikið mál. Það tekur tíma. Við erum að leggja áherslu á núna ein­fald­lega ódýr­ara Ísland, ein­fald­lega það að við getum gert rík­is­sjóð sem fyrst sjálf­bæran. Það er verið að skila rík­is­sjóði núna sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun með meira en fimm­tíu millj­arða halla. Við erum að benda á leiðir til að gera mat­ar­körf­una ódýr­ari, til að gera hús­næð­is­lánin þannig að þau slygi ekki fólk og við höfum miklar áhyggjur núna af þeim vaxta­hækk­unum sem eru strax farnar af stað, hvaða áhrif það muni hafa á unga fólkið, sér­stak­lega sem var að kaupa sér íbúðir núna bara á síð­asta ári og síð­ustu tveimur árum. Við erum að ein­blína á það og það gerum við með því að gera gagn­virka samn­inga við Evr­ópu­sam­bandið um að tengja krón­una við evru, reyna að leita í smiðju Dana. Það sem skiptir okkur mestu máli er geng­is­stöð­ug­leik­inn og fyr­ir­sjá­an­leik­inn.“

Segir Viðreisn ekki skila auðu

Þarna ertu farin að tala um efna­hags­stefn­una og sumsé Evr­ópu­sam­vinn­una sem kannski stærsta bit­ann í efna­hags­stefnu ykkar. Þið leggið mikla áherslu á að í kafl­anum í ykkar stefnu­skrá en það tekur tíma að fara í tví­hliða samn­inga við Evr­ópu­sam­bandið um að tengja gengi krónu við evru...

„Minni tíma heldur en að taka upp evru. Þess vegna leggjum við áherslu á þetta.“

En finnst þér þá ósann­gjarnt að draga þá ályktun að í efna­hags­stefnu ykkar sé því sem næst skilað auðu, eða alla vega að fáar hand­fastar aðrar aðgerðir séu kynntar til sög­unnar?

„Þetta tekur minni tíma en að við förum í miklar skatta­hækk­anir eða nið­ur­skurð og þær afleið­ingar sem eru af miklum nið­ur­skurði, til að mynda í vel­ferð­ar­málum og fara í skatta­hækk­un­ar­ferli eða fara í það að flækja skatt­kerfið núna akkúrat á þessum tíma­punkti. Nei, við erum ekki að skila auðu. Við erum nátt­úru­lega búin að segja það sem við ætlum að gera varð­andi sjáv­ar­út­veg og teljum að það sé hægt að auka þar. En við teljum líka að það sé hægt að gera betur varð­andi nýt­ingu fjár­muna rík­is­ins.“

Nú hafði þið talað um að draga úr rík­is­um­svifum og að auka einka­rekstur. Á hvaða sviðum mynduð þið vilja draga úr og hvar viljið þið auka einka­rekstur?

„Ef við tökum heil­brigð­is­kerfið sem dæmi, þar erum við eig­in­lega næstum því á önd­verðum meiði við rík­is­stjórn­ina og þá stefnu sem rík­is­stjórnin öll rekur. Það þýðir ekki að benda bara á Svandísi Svav­ars­dóttur, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefur stutt ein­dregið þessa stefnu, bæði með sam­þykkt í fjár­lögum en líka alls konar breyt­ingar í rík­is­stjórn­inni sem slíkri. Við viljum sterkt opin­bert heil­brigð­is­kerfi sam­hliða einka­rekstri. Við viljum miklu frekar vera áfram í nor­ræna mód­el­inu en ekki fara frá því og við ótt­umst það ekki að segja: Við viljum ekki tala um einka­væð­ingu eða rík­is­æð­ingu, við viljum þjón­ustu­væð­ingu.“

„Ég heyri það að til að mynda Sjálf­stæð­is­flokknum finnst rosa­lega erfitt að allt í einu sé hann líka lát­inn bera ábyrgð á þessum ólestri í heil­brigð­is­málum“

En nú er þetta miklu lengri saga, varð­andi geð­heil­brigð­is­málin, Land­spít­al­ann, nið­ur­greidda sál­fræði­þjón­ustu til að mynda. Þetta er búið að vera í ólestri til lengri tíma. Hver ber ábyrgð á því?

„Já, já, þetta er alveg rétt­mæt spurn­ing og ég heyri það að til að mynda Sjálf­stæð­is­flokknum finnst rosa­lega erfitt að allt í einu sé hann líka lát­inn bera ábyrgð á þessum ólestri í heil­brigð­is­málum. En Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er í und­an­farin átta ár meira og minna búinn að vera með fjár­mála­ráðu­neytið. Hefur Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn beitt sér við rík­is­stjórn­ar­borðið eða í sam­þykkt nýrrar heil­brigð­is­á­ætl­unar til 2030 eða í öðrum áætl­unum varð­andi heil­brigð­is­mál, að það eigi að nálg­ast þetta með öðrum mætti? Nei, hann hefur ekki gert neitt í þessu.

Þess vegna er þetta hlá­legt, ekki korteri fyrir kosn­ingar heldur fimm mín­útum fyrir kosn­ingar, að allt í einu hvít­þvo sig af þeim ólestri sem er að vissu leyti í íslensku heil­brigð­is­kerfi. Vel að merkja, í grunn­inn er það auð­vitað sterkt en það er alveg óþol­andi að horfa upp á óþarfa biðlista af því það er kergja í kerf­inu.“

Vilja einfalda skattkerfið

Ein þau vand­ræði sem íslenska heil­brigð­is­kerfið stendur frammi fyrir eru van­fjár­mögnun. Þið hafið talað um að þið viljið lækka skuldir rík­is­sjóðs. Hvernig á að afla rík­is­sjóði tekna?

„Með því að veita fyr­ir­tækj­unum svig­rúm. Meg­in­verk­efni okkar til að rík­is­sjóður geti staðið undir vel­ferð­ar­kerf­inu er að atvinnu­líf­inu gangi vel. Atvinnu­lífið verður að fá við­spyrnu, fá svig­rúm til að geta hlaupið hraðar. Hvernig gerum við það best? Það gerum við best með því að vera hér meðal ann­ars með geng­is­stöð­ug­leika. Það er algjört lyk­il­at­riði að að fyr­ir­tæki komi hingað, erlend fyr­ir­tæki geti komið hingað og fjár­fest, að fjár­festar hér heima geti farið í það að fjár­festa meira í íslensku atvinnu­lífi, með það í huga að vera ekki með í með mik­inn ófyr­ir­sjá­an­leika og óróa á mark­aði. Við getum látið atvinnu­lífið hlaupa hraðar þannig að hag­vöxtur verði meiri heldur en vext­irnir.“

Þið talið um að þið ætlið að beita hóf­legri og sann­gjarnri skatt­lagn­ingu. Hvað eigið þið við með því? Hvað er hóf­legt og hvað er rétt­látt?

„Ég held að við notum þennan alþjóð­lega sam­an­burð bara. Við erum ekki ekki lág­skatta land en við erum heldur ekki háskatta­land. Ég held að við séum með kerfi sem að mínu mati mætti ein­falda. En í stóru mynd­inni þá höfum við ekki farið þær leiðir sem til dæmis aðrar þjóðir hafa farið, til að mynda á Norð­ur­lönd­unum. Við erum með prógressít skatt­kerfi. Já, það er ágætt upp að ein­hverju vissu marki, ég myndi samt eins og ég segi vilja sjá það ein­fald­ara. Norð­ur­landa­þjóð­irnar eru með kannski ein­fald­ara skatt­kerfi en eru um leið með meiri styrki og stuðn­ing við þá sem á þurfa að halda.“

„Ef það er eitt­hvað sem við þurfum núna er það að ein­falda kerfið“

Þú ert á því að ein­fald­ara skatt­kerfi væri til bóta. En hvað með til dæmis skatt á fjár­magnstekjur? Sérðu fyrir þér þrepa­skipt­inu á þeirri skatt­heimtu?

„Ég get séð fyrir mér ýmsar breyt­ingar á skatt­kerf­inu. Það sem ég vil ekki gera er að að við tökum ekki heild­stætt á mál­inu. Ef það er eitt­hvað sem við þurfum núna er það að ein­falda kerfið, gera það ein­fald­ara þannig að það verði auð­veld­ara fyrir fólk og fyr­ir­tæki að starfa í land­inu.“

En er eitt­hvað flókið að starfa í þrepa­skiptu kerfi skatta­lega?

„Nei, nei, ég er ekki að segja það. En ég vil ekki taka þátt í þess­ari umræðu, að flækja skatt­kerfið enn frekar með ýmsum til­lögum sem geta verið settar fram með góðum hug ef það er til að flækja skatt­kerfið og ég man ekki eftir ein­hverjum skatt­stofni sem er lagður á sem hefur á end­anum bitnað á neinum öðrum heldur en með­al­tekju­fólki.“

En finnst þér þá ástæða til að skatt­leggja fjár­magnstekjur hærra?

„Eins og ég segi, ég myndi vilja taka þátt í því að skoða þetta heild­stætt, ég reiðu­búin í það. Ég er reiðu­bú­inn til að skoða heild­stætt þannig að rík­is­sjóður geti orðið sjálf­bær.“

Mikilvægast að koma ríkissjóði á réttan kjöl

Ef þú kemst til valda, hvað er það allra brýn­asta sem þú vilt leggja áherslu á?

„Að koma rík­is­sjóði á réttan kjöl. Að auka við­spyrnu í atvinnu­líf­inu, þannig að við aukum svig­rúm og öryggi fólks, meðal ann­ars fjár­hags­legt öryggi fólks. Ég vil sjá fleiri fyr­ir­tæki verða að veru­leika og ég vil sjá það verða betra að búa á Íslandi, að við horfum upp á sam­keppn­is­hæf lífs­kjör. Það er svona stóra þunga áherslan

Ef á að nefna eitt­hvað eitt mál, bara strax, kviss búmm bang, þá segi ég bara það sem ég hef sagt áður. Strax að lög­festa samn­ing Sam­ein­uðu þjóð­anna um rétt­indi fatl­aðs fólks. Það tekur ekki langan tíma og við eigum að keyra það í gegn. En það er einn rík­is­stjórn­ar­flokkur sem hefur staðið gegn því. Það er eitt­hvað sem við gætum gert fljótt og hratt og kerfið ætti ekki að vera að þvæl­ast fyrir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningastundin

Guðmundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn
FréttirKosningastundin

Guð­mundur Ingi: Atkvæði greitt VG sé atkvæði greitt gegn hægri stjórn

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverf­is­ráð­herra gengur sáttur frá borði þótt Vinstri græn hafi ekki náð mik­il­vægum mál­efnum í gegn. Helst sér hann eftir mið­há­lend­is­þjóð­garð­inum en mun halda bar­átt­unni áfram og segir lofts­lags­málin vera stærstu verk­efnin á kom­andi kjör­tíma­bili. Þar þarf að grípa til aðgerða í atvinnu­líf­inu og friða bæði hluta af landi og hafi.
Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði einhvers konar samfélagsrof“
ViðtalKosningastundin

Kristrún: „Það er ekki gott að hér verði ein­hvers konar sam­fé­lags­rof“

Kristrún Frosta­dóttir, odd­viti Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík suður, segir að hún hafi alltaf verið jafn­að­ar­maður í hjarta sínu þó hún hafi starfað fyrir Við­skipta­ráð og fjár­mála­fyr­ir­tæki. Hún segir að mik­il­vægt sé að efna­mikið fólk greiði meira til sam­fé­lags­ins og rök­styður stór­eigna­skatta sem rétt­læt­is­mál og góða hag­stjórn.
„Auðvaldið verður aldrei okkar samstarfsmaður“
ViðtalKosningastundin

„Auð­valdið verður aldrei okkar sam­starfs­maður“

Katrín Bald­urs­dóttir, odd­viti Sós­í­alista­flokks­ins í Reykja­vík Suður, segir að Sós­í­alista­flokk­ur­inn sé búinn að reikna út hversu miklar tekjur hann þarf til þess að standa við lof­orð sín og hvernig hann ætlar að nálg­ast slíkar tekjur en vill hins vegar ekki gefa upp hver upp­hæðin er, það væri „fárán­legt“. Hún segir Sós­í­alista­flokk­inn ætla að byggja upp sinn eigin fjöl­miðil, leggja af styrki til fjöl­miðla í gegnum rit­stjórnir og styrkja frekar blaða­menn í að fjalla um það sem flokknum finnst „þess virði“. Þá ætlar flokk­ur­inn sér einnig að setja á fót and-spill­inga­stofnun.
Bjarni Benediktsson sem forsætisráðherra er fyrsta tilboð Sjálfstæðisflokksins
FréttirKosningastundin

Bjarni Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra er fyrsta til­boð Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Birgir Ármans­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, svarar fyrir stefnu og feril flokks­ins í Kosn­inga­stund­inni. Hann ver ráð­herra flokks­ins, heitir áherslu á skatta­lækk­anir og segir kosn­inga­lof­orðin fjár­magn­ast með hag­vexti. Flokk­ur­inn mun gera upp­haf­lega kröfu um að for­mað­ur­inn Bjarni Bene­dikts­son verði for­sæt­is­ráð­herra í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár