521. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði, ekki þó fyrir erfiða spurningu um landlækna!

521. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði, ekki þó fyrir erfiða spurningu um landlækna!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan? Lár­við­ar­stig er í boði fyrir þá sem vita eftir nafn per­són­unnar, sem konan var að leika þegar myndin var tekin.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða íslenska fót­boltalið komst fyrir fáeinum vikum í riðla­keppni Meist­ara­deildar Evrópu í kvenna­flokki?

2.  Emma Raducanu er aðeins 18 ára en vann um dag­inn mikið afrek þegar hún vann öfl­ugt mót í ... í hverju?

3.  Í hvaða ríki var Kleópatra drottn­ing á fyrstu öld fyrir Krist?

4.  Þjóð ein í Evrópu nefnir sjálfa sig Magjara og land sitt Magyarország. Nafnið sem flestir aðrir hafa um landið er þó allt öðru vísi. Hvaða land er hér um að ræða?

5.  Hvað gerði Shady Owens sér til frægðar?

6.  Hver er eða var hinn raun­veru­legi Slim Shady?

7.  Hver skrif­aði bók­ina Afleggjar­ann?

8.  Manfreð Vil­hjálms­son heitir maður. Hann er nú kom­inn á efri ár og sestur í helgan stein en í ára­tugi var hann í fremstu röð á Íslandi á ákveðnu sviði. Hvaða svið var það?

9.  Hvaða fót­boltalið hefur oft­ast orðið Eng­lands­meist­ari í karla­flokki?

10.  Svo kemur ein erfið í lokin. Frá árinu 1906 til 1959 gegndu aðeins tveir karlar emb­ætti land­læknis á Íslandi. Hvað hétu þeir? Í þessu sjald­gæfa til­felli má gefa hálft stig fyrir annan nafnið, en fullt stig fæst aðeins fyrir þau bæði.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Grill á hvaða bíla­teg­und má sjá hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Breiða­blik.

2.  Tennis.

3.  Egifta­land.

4.  Ung­verja­land.

5.  Hún er söng­kona.

6.  Eminem. Sjá hér!

7.  Auður Ava.

8.  Arkitekt.

9.  Manchester United.

10.  Guð­mundur Björns­son og Vil­mundur Jónsson

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Konan á efri mynd­inni hét Lucille Ball, oft kölluð Lucy Ball. Hvorttveggja telst rétt. Í víð­frægum sjón­varps­þáttum lék hún hins vegar per­sónu nefnd­ist Lucy Ricardo. Fyrir „Ricardo“ fæst sem sé lár­við­ar­stigið.

Bíla­teg­undin er hin þýska BMW.

***

Og svo minni ég á að hér að neðan eru hlekkir á fyrri spurn­inga­þrautir og einnig þá næstu, þegar hún verður komin í loftið, sem ger­ist á morgun!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár