522. spurningaþraut: Eldfjall, morðtíðni, dularfullt efni og sitthvað fleira

522. spurningaþraut: Eldfjall, morðtíðni, dularfullt efni og sitthvað fleira

Fyrri auka­spurn­ing:

Skoðið mynd­ina hér að ofan. Hvaða fræga eld­fjall má sjá á mynd­inni (sem reyndar er ekki öll þar sem hún er séð)?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Efni eitt er upp­runnið í jurta­rík­inu og var fyrst unnið á Indlandi. Þaðan breidd­ist það til Kína en þó aðeins hægt og rólega. Til Evrópu barst það í svolitlum mæli með her­mönnum Alex­and­ers mikla um 300 fyrir Krist, en í kringum Krists burð segir Róm­verj­inn Pliníus eldri frá efn­inu eins og það sé mjög sjald­gæft og „aðeins notað til lækn­inga“. Það var eig­in­lega ekki fyrr en á kross­ferða­tímunum sem efnið tók að ber­ast í veru­legum mæli til Evrópu frá Asíu og fyrst var það aðal­lega talið lækn­inga­meðal. Svo varð sann­kölluð spreng­ing í notkun þess og vinnslu um 1500. Hvaða efni er þetta?

2.  Hvaða ríki er á sínu eigin tungu­máli ritað Ελλάδα? Á voru letri er þetta skráð Ellada.

3.  Í frægum barna­bókum frá mið­biki 20. aldar kom fyrir dýrið Kíkí. Hvernig dýr var Kíkí?

4.  Í hvaða sjón­varps­þáttum leysa pilt­ur­inn Ryder og nokkrir kátir hvuttar alls konar erfið mál?

5.  Í hvaða tveimur löndum er lægst morða­tíðni í heimi? Það dugir að nefna annað til að fá stig og ég skal leggja ykkur lið með því að upp­lýsa að bæði eru í Asíu.

6.  Hver er eini Íslend­ing­ur­inn sem hefur fengið verð­laun fyrir kvik­mynda­leik á Cannes-kvik­mynda­há­tíð­inni?

7.  Og fyrir hvaða bíó­mynd?

8.  Hörður Áskels­son er hljóð­færa­leik­ari góður. Hvaða hljóð­færi varð hann fyrst og fremst kunnur fyrir að leika á?

9.  Arn­þrúður Karls­dóttir, sem stýrir Útvarpi Sögu, komst fyrst í sviðs­ljósið þegar hún var ein af hinum fyrstu konum sem ráðnar voru í ákveðið starf sem fram að því hafði verið talið ein­göngu við karla­hæfi. Arn­þrúður var sem sé ...?

10.  Við mynni hvaða fjarðar á Íslandi stendur Djúpi­vogur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hverjir eru karl­arnir tveir í jöðrum þessa skjá­skots?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sykur.

2.  Grikk­land.

3.  Páfa­gaukur.

4.  Hvolpa­sveitin, PAW Patrol.

5.  Singapúr og Japan.

6.  Björk Guð­munds­dóttir.

7.  Dancer in the Dark.

8.  Orgel.

9.  Lög­reglu­maður.

10.  Beru­fjarðar.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá Kötlu fyrir miðju eftir að Mýr­dals­jök­ull hefur verið fjar­lægður af fjöll­unum þar um slóðir. Norður er til vinstri, svona nokkurn veg­inn.

Á neðri mynd­inni má sjá Björn og Benny, félaga í hljóm­sveit­inni ABBA.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár