520. spurningaþraut: Hér víkur að landafræði, eyjum, fjöllum, gljúfrum og svoleiðis

520. spurningaþraut: Hér víkur að landafræði, eyjum, fjöllum, gljúfrum og svoleiðis

Allar spurn­ingar í dag snú­ast úr landa­fræði og þá ein­göngu erlendis.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir eyjan sem sést hér fyrir miðju?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Stóragil eða Grand Canyon er eitt glæsi­leg­asta gljúfur í heimi, enda engin smá­smíði. Það er 446 kíló­metra langt, 49 kíló­metra breitt þar sem það er breið­ast og 1,800 metra djúpt þar sem það er dýpst. Það er í Banda­ríkj­unum eins og flestir vita, en hvað heitir áin sem hefur grafið þetta mikla gljúfur?

2.  Grand Canyon er samt ekki lengsta gljúfur á jörð­inni. Það allra lengsta er talið vera 750 kíló­metra langt, en reyndar hvorki eins breitt (um 10 kíló­metra) né djúpt (lík­lega um 800 metra þar sem dýpst er) og Grand Canyon. Hvar er þetta langa gljúfur?

3.  Á mörkum hvaða ríkja rísa Pýrenea­fjöll?

4.  Annar fjall­garður gengur eftir Ítalíu endi­langri. Hvað heitir hann?

5.  Hver af eft­ir­töldum eyjum er í Karí­ba­hafi: Maui, Flores, Tahiti, Alcatraz, Barbados eða Tristan da Cunha?

6.  Baarah, Dhiddhoo, Filladhoo, Hoarafushi, Ihavandhoo, Kelaa, Maarandhoo, Mulhadoo, Thakandhoo, Thura­ak­unu, Uligamu, Utheemu og Vahafaru eru nöfn á byggðum eyjum í afskekktum eyja­klasa, sem er sjálf­stætt ríki. Íbúar eru heldur fátækir, því miður, en ríka fólk­inu í heim­inum þykir þó fínt að heim­sækja eyja­kla­s­ann. Hvað heitir hann?

7.  Í hvaða heims­álfu er landið Súrinam?

8.  Hvaða land í ver­öld­inni heitir á tungu flestra heima­manna Suomi?

9.  Stærsta raun­veru­lega stöðu­vatnið í vest­an­verðri Evrópu (sem sagt ekki uppi­stöðu­lón af neinu tagi) liggur hátt í fögrum fjalla­dal og tvö ríki deila með sér ströndum þess. Hvað heitir þetta stöðu­vatn?

10.  Sá punktur á landi á Jörðinni sem er lengst frá sjó mun vera 2.645 kíló­metra frá næstu sjáv­ar­fjöru. Hann er nálægt landa­mærum tvegga ríkja. Hver eru þau, og nefna verður bæði rétt til að fá stig. 

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir haf­svæðið sem (hluti af) sést hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Colorado-fljótið.

2.  Undir ísnum á Græn­landi.

3.  Spánar og Frakk­lands. Það er óþarfi að nefna Andorra, það er bein­línis í fjöll­unum.

4.  App­enína­fjöll.

5.  Barbados.

6.  Maldíve-eyjar á Ind­lands­hafi.

7.  Suður-Ameríku.

8.  Finnland.

9.  Gen­far­vatn á mótum Sviss og Frakk­lands.

10.  Þessi staður er í Kína um 100 kíló­metra frá landa­mær­unum að Kasakstan.

Það er rauði punkt­ur­inn sem er lengst frá sjó.Hvað guli punkt­ur­inn er að gera þarna veit ég ekki.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Eyjan á efri mynd­inni heitir Amager og er við Sjá­lands­strendur í Danmörku. Ég sagði „fyrir miðju“.

Á neðri mynd­inni sést hins vegar hluti Eyja­hafs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár