Boða fjárfrek verkefni en því sem næst engar tillögur til tekjuöflunar

Aðeins tvö af áttatíu áherslu­málum Framsóknar­flokksins fyrir alþingis­kosningar myndu afla ríkis­sjóði beinna tekna. Fátt er um skýr áherslu­atriði. Áfengis­kaupa­aldur og kjörgengi til forseta myndi færast niður í 18 ár ef áherslur flokksins ná fram að ganga.

Vilja fjölga ráðuneytum
Vilja fjölga ráðu­neytum Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill setja á lagg­irnar þrjú ný ráðu­neyti á næsta kjör­tíma­bili, ráðu­neyti skap­andi greina, lofts­lags­ráðu­neyti og land­bún­aðar- og mat­væla­ráðu­neyti sem tæki jafn­framt yfir skóg­rækt og land­græðslu úr umhverf­is­ráðu­neyt­inu. Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður flokks­ins, er sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Mynd: Heiða Helgadóttir

Framsóknar­flokkurinn vill skatt­leggja hreinan hagnað fyrir­tækja yfir 200 milljónir króna á ári hærra en gert er í dag. Það, auk áherslu á að sanngjörn gjaldtaka verði tryggð fyrir not af sameiginlegum auðlindum í fiskeldi, eru um það bil einu tvö atriðin í áttatíu atriða lista yfir kosninga­áherslur Framsóknar­flokksins sem gætu aflað ríkis­sjóði beinna, hand­fastra tekna. Flest hin áherslu­atriðin krefjast útgjalda af hálfu ríkis­sjóðs, sum verulegra.

Fá mælanleg markmið er að finna í kosninga­áherslum Framsóknar­flokksins, sé horft til þess að hvað útgjöld stefnu­málin hafi í för með sér, hvaðan sækja eigi fjármuni til framkvæmdar þeirra, hver tímarammi einstakra aðgerða eigi að vera eða hreinlega með hvaða hætti þeim verði hrint í framkvæmt. Í flestum tilfellum eru áherslurnar afar almennt orðaðar og lýst á almennan hátt.

Þó er að finna nokkur dæmi um áherslur þar sem skýrt er tekið fram hvað flokkurinn vilji gera, komist hann í aðstöðu til eftir kosningar. Þannig vill Framsóknar­flokkurinn að allir sem vilja eigi kost á þriðja skammti bóluefnis gegn Covid-19. Þá vill flokkurinn að öll réttindi sem tengjast fullorðins­aldri verði virk við 18 ára aldur. Ekki er tiltekið hver þau réttindi eru en almenn borgaraleg réttindi sem verða virk eftir 18 ára aldur nú eru meðal annars kjörgengi í forseta­kosningum og áfengiskaup­aldur. Þá ætti ríkið að greiða 60 þúsund krónur til hvers barns á landinu árlega sem stuðning við frístunda­starf.

Boða aukinn einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Þó fleiri dæmi séu um áherslu­atriði sem þar sem skýrt er tiltekið hverju Framsóknar­flokkurinn vill hrinda í framkvæmd eru hin atriðin, þar sem aðeins er um almennt orðaða stefnu að ræða, margfalt fleiri. Þannig kemur fram í kafla um heilbrigðis­þjónustu að flokkurinn vilji „endurmeta og samþætta þjónustu við fólk sem hefur lent í áföllum á lífs­leiðinni“. Það á að gera „með fjölþættum aðgerðum“. Ekki er frekar útskýrt hvernig standa á að þeim aðgerðum, hvaða þjónustu á að veita né hvaða fjármuni á að setja í mála­flokkinn.

„Framsókn vill að skoðað verði hvort frek­ari til­efni sé til auk­ins einka­rekst­urs innan heil­brigð­is­geirans“

Í sama kafla segir að Framsóknar­flokkurinn leggi áherslu á að „gæði heilbrigðis­þjónustu séu ávallt eins og best verður kosið“ þó vitanlega verði að leita hagkvæmra leiða í þeim efnum. „Framsókn vill að skoðað verði hvort frekari tilefni sé til aukins einka­reksturs innan heilbrigðis­geirans. Það þarf einfald­lega að nota þær aðferðir sem skila bestum árangri á sem skjótasta máta,“ er ennfremur tiltekið.

Auk þessa vill flokkurinn efla geðheil­brigðis­þjónustu í forvarnar­skyni, ekki síst fyrir börn og félags­lega veika hópa. Þá á að stórefla heilbrigðis­þjónustu utan sjúkra­stofnana, sérstak­lega fyrir eldra fólk, samkvæmt stefnu­skránni. Ekki eru kynntar leiðir til þess að hrinda slíku í framkvæmd sérstak­lega og ekki er lagt mat á hver kostnaður, eða mögulegur fjárhags­legur ávinningur, af slíku gæti verið.

Framsókn ætlar, samkvæmt kosninga­áherslum sínum, að stytta biðlista eftir greiningum barna með því að fjölga sérhæfðu starfs­fólki og grípa fyrr inn í aðstæður. Ekki kemur fram hvort styrkja eigi menntun á sviðinu til að fjölga starfs­fólki eða hvort hægt verði að fá fólk með menntun og reynslu til starfa með öðrum leiðum. Ekki kemur heldur fram hvort og þá hvaða fjármunum verði ráðstafað til verksins.

Flokkurinn vill hins vegar að komið verði á þjónustu­tryggingu sem þýði að ef barn fær ekki heil­brigðis- eða félags­þjónustu hjá hinu opinbera sé því vísað til einka­aðila.

Hyggjast byggja nýja þjóðarleikvanga

Íþróttir og frístunda­starf fá töluvert vægi í stefnu­skránni. Þannig vill Framsóknar­flokkurinn byggja nýja þjóðar­leikvanga á næsta kjör­tímabili í samstarfi við íþrótta­hreyfinguna. Líklega er hér verið að vísa til nýs þjóðar­leikvangs fyrir knatt­spyrnu og nýrrar íþrótta­hallar sem gæti nýst sem þjóðar­leikvangur, sérstak­lega fyrir hand­knattleik og körfu­knattleik. Um langt skeið hefur verið ljóst að Laugar­dalshöll uppfyllir ekki þau skilyrði sem þörf er á og umræður um uppbyggingu nýs leikvangs í stað Laugar­dalsvallar hafa staðið árum saman. Að sama skapi er ljóst að um verulega fjár­frekar framkvæmdir er að ræða. Ekki kemur fram hvernig skuli fjármagna þær í kosninga­stefnu Framsóknar­flokksins.

Þá vill flokkurinn auka stuðning við afreks­fólk í íþróttum með auknum fjár­framlögum, auka framlög í ferða­jöfnunar­sjóð íþrótta­félaga til að jafna aðstöðumun lands­byggðarinnar og styðja sérstak­lega við íþrótta­félög sem starf­rækja meis­tarflokka kvenna.

Vilja að eldra fólk geti unnið lengur

Í kafla þar sem fjallað er um eldra fólk er, líkt og varðandi heilbrigðismál, lögð áhersla á að endur­skipuleggja mála­flokkinn. Boðað er „stórátak í uppbyggingu heima­hjúkrunar og dagþjálfunar­rýma“, að endur­hæfingar­úrræðum verði fjölgað og þau bætt og sköpuð fjöl­breyttari þjónusta sem styðji við eldra fólk til að búa sem lengst heima hjá sér.

Framsóknar­flokkurinn vill aukinheldur afnema reglur um að fólk verði að hætta störfum við ákveðinn aldur. Hækka á almennt frítekju­mark í skrefum en stóru tíðindin eru þó líklega að nái áherslur flokksins fram að ganga verða lífeyris­skerðingar vegna atvinnu­tekna afnumdar.

„Fólk undir fer­tugu á ekki að neyð­ast til að fara á örorku“
Ásmundur Einar DaðasonFram­sókn­ar­flokk­ur­inn lítur til end­ur­skoð­unar á mál­efnum barna á kjör­tíma­bil­inu sem leið­ar­steins í end­ur­skoðun á fleiri mála­flokkum.

Í kosninga­stefnuskrá Framsóknar­flokksins er ítrekað talað um að fara eigi í heildar­endurskoðun á ýmsum mála­flokkum, og er þar gjarnan vísað til reynslu af endur­skipulagningu opinberrar þjónustu við börn á síðasta kjör­tímabili, sem Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamála­ráðherra Framsóknar­flokksins, stóð fyrir. Þetta á við um málefni öryrkja en í kosninga­áherslunum segir að flokkurinn vilji heildar­endurskoðun á þeim. Þá vill flokkurinn aðstoða öryrkja við að komast í vinnu og fara í húsnæðisátak til að aðstoða öryrkja við að koma tryggu þaki yfir höfuðið.  „Fólk undir fertugu á ekki að neyðast til að fara á örorku,“ segir í stefnu­skránni.

Standa vörð um íslenska tungu

Þarna er vikið að húsnæðis­málum og vill flokkurinn auka framboð á almennum íbúðum fyrir öryrkja og fatlaða. Ekki er talað um mælanlegar aðgerðir í þeim efnum, hvorki hversu margar slíkar íbúðir eigi að vera, hvernig búsetu­form yrði um að ræða, hvaða aðilar ættu að hafa aðkomu að þeim aðgerðum eða hversu háum fjárhæðum yrði veitt úr ríkis­sjóði í verkefnið. Þá vill flokkurinn hlutdeildarlán fyrir fleiri en fyrstu kaupendur, sérstak­lega er horft til eldra fólks og félags­lega veikra hópa.

Lilja Dögg Alfreðs­dóttir mennta­mála­ráð­herraFram­sókn­ar­flokk­ur­inn vill auka vægi iðn- og tækni­mennt­unar.

Þegar kemur að mennta­málum, sem Lilja Dögg Alfreðs­dóttir hefur farið fyrir sem ráðherra síðasta kjör­tímabil, segir að flokkurinn vilji efla kennara­stéttina og undir­strika mikilvægi þess að halda menntuðum kennurum í starfi. Ekki eru kynntar beinar aðgerðir í þessa veru. Þá vill Framsóknar­flokkurinn auka vægi iðn- og tækni­menntunar og tryggja enn frekar jafnræði bók- og verknáms. Ekki kemur fram hvaða leiðir verða farnar til þess. Öllum verði tryggð menntun og kennsla við hæfi.

Haldið er í þá þjóðlegu taug, sem löngum hefur einkennt Framsóknar­flokkinn, er varðar íslenskuna. „Framsókn vill að áfram verði lögð áhersla á að styðja kröftug­lega við íslenska tungu í sífellt alþjóðlegri og stafrænni heimi,“ segir í stefnu­skránni og auk þess er tiltekið að tryggja eigi öllum sem eru af erlendu bergi brotnir og flytja hingað til lands tækifæri til að læra íslensku.

Fátt um skattamál

Eins og greint er frá að framan vill flokkurinn skatt­leggja hagnað fyrir­tækja yfir 200 milljónir króna hærra en verið hefur. Það verði gert með því að taka upp fleiri þrep í tekju­skatti fyrir­tækja. Ekki kemur fram hversu mörg þrep ætti að taka upp, hver þau ættu að vera eða hversu hátt ætti að skatt­leggja umræddan hagnað og þar af leiðandi kemur ekkert fram um hverju slík skatt­heimta myndi skila. Enn fremur vill flokkurinn að tekið verði upp þrepa­skipt trygginga­gjald sem verði lægra en nú er á lítil og meðalstór fyrirtæki.

Framsóknar­flokkurinn vill nota skatt­kerfið til að jafna aðstöðu fólks á lands­byggðinni ásamt því að styðja betur við rekstur lítilla og meðal­stórra fyrir­tækja. Hvernig það verði gert er ekki útskýrt frekar og engar frekari áherslur er að finna hvað varðar skatt­lagningu á einstaklinga, félög eða fyrirtæki.  

Til að skjóta frekari stoðum undir íslenskt efnahagslíf vill flokkurinn setja á laggirnar nýtt ráðuneyti skapandi greina. Efla á kvik­myndagerð, meðal annars með því að hækka endur­greiðslur vegna kostnaðar í 35 prósent en hlut­fallið er 25 prósent í dag. Á síðasta ári voru um 2,3 milljarðar króna endur­greiddir og 1,1 milljarður króna árið 2019.

Vilja að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti

Framsóknar­flokkurinn vill uppfylla loftslags­markmið en lítur jafnframt á lofts­lagsmál sem tækifæri fyrir Ísland, þegar kemur að útflutningi í þekkingu á grænni orku og jafnvel orkunni sjálfri. Þannig vill flokkurinn einnig í þeim mála­flokki setja á stofn nýtt ráðuneyti, loftslags­ráðuneyti.  „Stefnan er kolefnis­hlutlaust Ísland árið 2040,“ segir í stefnu­skránni. Engar leiðir, hvatar eða ákvæði eru kynnt til sögunnar í þessum efnum. Þó má geta þess að flokkurinn vill taka stærri skref í orku­skiptum í samgöngum og flutningum á landi og sjó. „Markmiðið er að Ísland verði óháð jarðefna­eldsneyti og að raforku­kerfið sé forsenda orku­skipta og efnahagslegra framfara með nýtingu innlendra, hagkvæmra og hreinna orkugjafa í samgöngum.“ Hvaða leiðir eigi að fara í þessum efnum er ekki tíundað, hvort sú orka sem til er í landinu sé talin nægjanleg eða hvort ráðast þurfi í virkjana­framkvæmdir. Jafnframt er markmiðið ótímasett en talað er um næstu ár.

Í yfir­standandi kjör­tímabili hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar­flokksins, farið með samgöngumál sem ráðherra. Í þeim mála­flokki ætlar flokkurinn sér stóra hluti miðað við stefnu­skránna, með því að fækka einbreiðum brúm, aðskilja akstur­stefnur á umferðarþyngtu vegum, stytta vega­lengdir milli byggða, byggja upp hafnir og styrkja og efla innan­landsflug­velli. Þá vill flokkurinn að á hverjum tíma sé unnið að byggingu að minnsta kosti einna jarðganga á landinu. Flokkurinn vill sjá áfram­haldandi einka­framkvæmdir í vegamálum.

Byggðamál og landbúnaður skipa áfram stóran sess

Framsóknar­flokkurinn hefur í sögulegu samhengi sótt mestan stuðning sinn til lands­byggðar og því ekki að undra að flokkurinn leggi áherslu á byggðamál í stefnu­skrá sinni. Flokkurinn vill beita fjárhags­legum hvötum til að bæta aðgengi að opinberri þjónustu við íbúa á skilgreindum brot­hættum svæðum á lands­byggðinni.

„Framsókn vill standa vörð um fæðu- og mat­væla­ör­yggi á Íslandi með dyggum stuðn­ingi við íslenska mat­væla­fram­leiðslu sama í hverju hún felst“

Að sama skapi á að auka fjármagn til byggða­áætlunar, þó ekki komi fram um hversu háar fjárhæðir, og einni að auka eigið fé Byggða­stofnunar. Ekki er heldur tilgreint hvaða upphæðir er um að ræða í því tilviki. Efla á smærri þorp sem standa höllum fæti.

Rétt eins og Framsóknar­flokkurinn hefur skipað sér sess sem flokkur lands­byggðarinnar hefur hann lengst af staðið hvað dyggastan vörð um landbúnað á Íslandi. Á því er ekki breyting ef miða má kosninga­áherslurnar. Enn eitt nýtt ráðuneyti á að stofna, land­búnaðar- og matvæla­ráðuneyti, en jafnframt á að flytja skógrækt og land­græðslu frá umhverfis­ráðuneytinu undir hið nýja ráðuneyti.

„Framsókn vill standa vörð um fæðu- og matvæla­öryggi á Íslandi með dyggum stuðningi við íslenska matvæla­framleiðslu sama í hverju hún felst,“ segir þar auk þess sem stórefla eigi nýsköpun í matvæla­framleiðslu og land­nýtingu. Í því samhengi má greina ákveðna áherslu­breytingu hjá flokknum varðandi stuðnings­kerfi land­búnaðarins. „Stefna ber að því að öll land­nýting og ræktun sé sjálfbær og stuðningur hins opinbera þarf í meira mæli að beinast að því að efla fjöl­breyta ræktun og land­nýtingu, þar með talið kolefnis­bindingu.“

Í nýjustu könnun á fylgi stjórn­mála­flokkanna, sem MMR gerði fyrir Morgun­blaðið og birt var í gærmorgun, mælist Framsóknar­flokkurinn næst stærstur flokka á landinu, með 12,5 prósenta fylgi. Það myndi skila flokknum átta þing­mönnum. Samkvæmt niður­broti á könnuninni eftir kjördæmum stendur vara­formaður flokksins, Lilja D. Alfreðs­dóttir, afar tæpt en hún kæmist inn sem síðari uppbótar­þingmaður í Reykjavík suður. Þess ber þó að geta að svar­fjöldi í könnuninni er takmarkaður og því varhuga­vert að lesa mikið í skiptingu þingsæta milli kjördæma. 

Fylgi flokksins mældist því sem næst hið sama í könnun Maskínu fyrir Stöð 2 sem birt var 24. ágúst síðastliðinn. Þá mældist flokkurinn með 12,6 prósenta stuðning. Í kosningunum 2017 fékk Framsóknar­flokkurinn 10,7 prósent atkvæða og átta þingmenn kjörna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Kosningar 2021

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár