Formaður Læknafélagsins segir Willum flytja „trumpiskar falsfréttir“

Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­fé­lags­ins, vill að Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar, biðj­ist afsök­unar á árásum á lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga. Þingmenn eigi að axla ábyrgð á van­fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins.

Segir Willum ráðast á lækna og hjúkrunarfræðinga
Segir Willum ráð­ast á lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga Formaður Lækna­fé­lags­ins er mjög ósáttur við að for­maður fjár­laga­nefndar varpi ábrygð á nið­ur­skurði á Land­spít­ala yfir á heil­brigð­is­stéttir og kjara­mál þeirra.

Willum Þór Þórsson, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis, heldur á lofti „trump­iskum fals­fréttum“ þega hann reynir að varpa ábyrgð á nið­ur­skurði á þjón­ustu Land­spít­ala yfir á lækna. Þetta skrifar Reynir Arn­gríms­son, for­maður Lækna­fé­lags Íslands, á Facebook.

Tilefnið er for­síðu­frétt Frétta­blaðs­ins þar sem rætt er við Willum um aðhalds­kröfu á hendur Land­spít­ala sem birt­ist í fjár­laga­frum­varpi fyrir næsta ár. Í frétt­inni er haft eftir Willum að hluti vanda Land­spít­ala sé að komið hafi verið til móts við lækna og hjúkr­un­ar­fræð­inga í kjara­málum.

Þetta telur Reynir að sé arg­asti útúr­snún­ingur, ábyrgðin á van­fjár­mögnun heil­brig­is­kerf­is­ins liggi hjá stjórn­mála­mönnum. Með mál­flutn­ingi sínum dragi Willum lækna inn í umræðu um „nið­ur­skurð ykkar stjórn­màla­manna á þjón­ustu Land­spital­ans á hættu­tímum og reynir að varpa ábyrgð­inni á að komið hefði verið til móts við lækna í kjara­málum. Þetta eru trump­iskar fals­fréttir.“

„Þið þing­menn kúrið undir pils­faldi í stað þess að axla ábyrgð á van­fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins“

Hið rétta sé, skrifar Reynir, að ekki hafi verið samið við lækna á Land­spít­ala, þeir hafi þvert á móti verið samn­ings­lausir í 21 mánuð og laun þeirra hafi ekki breyst síðan um mitt ár 2018. Læknar hafi sinnt störfum sínum og ekki vikið sér undan ábyrgð þrátt fyrir þetta. „Hafa unnið í hættu- og neyð­ar­stigi spít­al­ans og sumir veikst við skyldu­störf meðan þið þing­menn kúrið undir pils­faldi í stað þess að axla ábyrgð á van­fjár­mögnun heil­brigð­is­kerf­is­ins.“

Reynir leggur það til við Willum að hann leið­rétti mál­flutn­ing sinn og biðj­ist afsök­unar á „árás á kollega okkar og sam­starfs­fólk, hjúkr­un­ar­fræð­inga sem eiga annað og betra skilið af ykkur stjórn­mála­mönnum.

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ríkisstjórn Katrínar

FréttirRíkisstjórn Katrínar

„Ég hef miklu meiri áhyggjur af vinstr­inu á Íslandi heldur en VG“

Drífa Snædal sagði eft­ir­minni­lega árið 2017 að það yrði „eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil“ fyrir Vinstri græn að fara í rík­is­stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. Staða hennar gamla flokks í dag kemur henni ekki á óvart. „Fyrir vinstrið í fram­tíð­inni þá þarf það nátt­úr­lega að hafa afleið­ingar fyrir flokk að miðla málum svo hressi­lega að það er ekk­ert eftir af hug­sjón­unum,“ segir Drífa.
GreiningRíkisstjórn Katrínar

Sambúðin sem sært hefur VG nán­ast til ólífis

Vinstri græn sungu hástöfum á lands­fundi sínum fyrir rúmu ári: „Það gæti verið verra.“ Nú hefur það raun­gerst. Flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum og hefur ekki sam­mælst um nýja for­ystu eftir brott­hvarf eins vin­sælasta stjórn­mála­manns lands­ins og flokk­ur­inn skrapar botn­inn í fylg­is­mæl­ingum. Hvort flokk­ur­inn sé nægi­lega sterkur til að spyrna sér upp og forða sér frá útrým­ingu á eftir að koma í ljós.

21 mín. lestur

GreiningRíkisstjórn Katrínar

Róttækur hug­sjóna­flokkur verður að borg­ara­legum valda­flokki

Vinstri græn hafa á síð­ustu fimm og hálfu ári tapað trausti og trú­verð­ug­leika, gefið afslátt af mörgum helstu stefnu­málum sínum og varið hegðun og aðgerðir sem flokk­ur­inn tal­aði áður skýrt á móti. Samhliða hefur rót­tækt fólk úr gras­rót­inni yfir­gefið Vinstri græn, kjós­enda­hóp­ur­inn breyst, hratt gengið á póli­tíska inn­eign Katrínar Jak­obs­dóttur og fylgi flokks­ins hrunið. Þetta er fórn­ar­kostn­aður þess að kom­ast að völdum með áður yfir­lýstum póli­tískum and­stæð­ingum sínum.

10 mín. lestur

ÚttektRíkisstjórn Katrínar

Stjórn­ar­sátt­mál­inn er stefna Fram­sókn­ar­flokks­ins

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur er miðju­sækin íhalds­stjórn, að mati Eiríks Berg­manns Ein­ars­sonar stjórn­mála­fræð­ings. Gera á allt fyrir alla, að mati Stefaníu Ósk­ars­dóttur stjórn­mála­fræð­ings. Sum þeirra mála sem ekki náðu fram að ganga á síð­asta kjör­tíma­bili ganga aftur í sátt­mál­anum en ann­arra sér ekki stað.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár