470. spurningaþraut: Hér er eingöngu spurt um kvikmyndaleikstjóra

470. spurningaþraut: Hér er eingöngu spurt um kvikmyndaleikstjóra

Þessi spurn­inga­þraut snýst öll um kvik­mynda­leik­stjóra.

Einn slíkur er á mynd­inni hér að ofan. Hvað heitir hann?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ég hef áreið­an­lega spurt að þessu áður en aldrei er góð vísa of oft kveðin: Hver leik­stýrði Stellu í orlofi?

2.  Hver leik­stýrði á löngum ferli myndum á borð við Rashomon, Sjö sam­úraí, Yojimbo, Dersu Uzala og Ran?

3.  Hver leik­stýrði myndum eins og Alien, Blade Runner, Thelma and Louise, Gladi­ator og Prometheus?

4.  Hver leik­stýrði mynd­inni Ungfrúin góða og húsið?

5.  Hver leik­stýrði myndum eins og Solaris, Stalker og Fórninni?

6.  Hver leik­stýrði mynd­inni Taxi Driver árið 1976?

7.  Hver hefur leik­stýrt mörgum myndum um Indiana Jones þótt hann muni víst ekki leik­stýra þeirri næstu?

8.  Kona ein átti langan feril í kvik­myndum en gerði mjög fáar leiknar myndir. Nokkrar heim­ilda­myndir sem hún gerði á fjórða ára­tugnum öfl­uðu henni hins vegar ódauð­legrar frægðar fyrir öfl­ugt — en líka mjög umdeilt — mynd­mál. Hvað hét hún?

9.  Hinar eig­in­legu Star Wars myndir eru níu tals­ins. Einn og sami leik­stjór­inn hefur leik­stýrt fjórum þeirra. Hvað heitir hann?

10.  Hvaða leik­stjóri af miklum kvik­mynda­ættum leik­stýrði árið 2003 mynd­inni Lost in Translation, þar sem Bill Murray og Scarlett Johansen þvæld­ust um í Japan? 

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvað hét þessi leik­stjóri?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þór­hildur Þor­leifs­dóttir.

2.  Kurosawa.

3.  Ridley Scott.

4.  Guðný Hall­dórs­dóttir.

5.  Tar­kov­sky.

6.  Scorsese.

7.  Spi­el­berg.

8.  Leni Riefen­sthal.

9.  Lucas.

10.  Sofia Coppola.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er James Cameron.

Á neðri mynd­inni er Alfred Hitchcock.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár