471. spurningaþraut: „Komdu þér í klaustur!“

471. spurningaþraut: „Komdu þér í klaustur!“

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hver er mað­ur­inn sem situr við skrif­borð hér að ofan? Myndina fann ég í Sarpi Þjóð­minja­safns­ins og lit­aði hana að gamni mínu, en hún er í raun svart­hvít, ljós­mynd­ari Sigurður Guð­munds­son.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Komdu þér í klaustur!“ sagði karl nokkur, hel­stil hrana­lega, við konu eina. Það kann meira að segja að vera að með orð­inu „klaustri“ hafi hann átt við vænd­is­hús. Konan varð miður sín yfir þessum dóna­skap. Hvað hét hún?

2.  Nokkru seinna missti hún föður sinn með voveif­legum hætti og það bætti nú ekki geð­heils­una. Hvað hét pabbi hennar?

3.  Nýjasta bíó­mynd Baltasars Kormáks var frum­sýnd 2018 og heitir Adrift. Hvar ger­ist hún að mestu leyti?

4.  Við hvaða inn­haf stendur borgin Vla­di­vostok?

5.  „Hið ljósa man“ og „álfa­kropp­ur­inn mjói“. Hvaða konu var svo lýst?

6.  Margar þjóðir nota kvið­dóma almenn­ings til að skera úr um sekt eða sak­leysi í dóms­málum. Hve margir sitja yfir­leitt í slíkum kvið­dómum?

7.  Hve margir hólmar eru í stærstu Tjörn­inni í Reykja­vík?

8.  En hve mörg eru hólf manns­hjart­ans?

9.  Á Sauð­ár­króki er hótel sem ber sama heiti og gamlir en mjög vin­sælir breskir gam­an­þættir úr sjón­varp­inu — og hér er átt við íslensku þýð­ing­una á nafni sjón­varps­þátt­anna. Sem er hvað?

10.  Til hvers var stjórn­ar­ráðs­húsið í Reykja­vík reist?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hvað heitir konan sem þarna heldur á barni sínu?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Ófelía — úr leik­riti Shakespe­ares.

2.  Polonius.

3.  Á skútu. Ómögu­legt er annað en gefa líka rétt fyrir: Úti á sjó.

4.  Við Jap­ans­haf. Ég gef líka rétt fyrir Aust­ur­haf.

5.  Snæfríði Íslands­sól úr Íslands­klukku Halldórs Laxness.

6.  Tólf.

7.  Tveir.

8.  Fjögur.

9.  Hótel Tinda­stóll. Fawlty Towers á ensku.

10.  Sem fang­elsi.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Hermann Jónasson.

Á neðri mynd­inni er Carrie Johnson, eig­in­kona breska for­sæt­is­ráð­herr­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár