469. spurningaþraut: Ópal og smaragðar

469. spurningaþraut: Ópal og smaragðar

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mál­verk­inu hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi í Evrópu eru flestir íbúar skráðir kaþ­ólikkar, 85,80 pró­sent? Hér er Vatíkanið vel að merkja ekki talið með.

2.  En hvaða land skyldi koma þar á eftir með með 84,50 pró­sent kaþ­ólikka?

3.  Hvers konar fyr­ir­tæki eru Avis og Hertz?

4.  Bogi Nils Bogason er for­stjóri eins af stærstu fyr­ir­tækjum á Íslandi. Hvað heitir það?

5.  Fyrstu til­raunir manna til bólu­setn­ingar voru gegn hvaða sjúk­dómi?

6.  Í næstefstu deild enska fót­bolt­ans leika tvö lið frá Veils. Hvað heita þau? — og já, nefna verður bæði.

7.  Hvernig var sú ópal­teg­und á lit­inn sem bönnuð var fyrir all­mörgum árum?

8.  En hvernig eru smar­agðar hins vegar á lit­inn?

9.  Laust fyrir alda­mótin 2000 var fyr­ir­huguð stór virkjun á Aust­ur­landi sem síðan var hætt við. Við hvað var þessi virkjun kennd?

10.  En í stað þeirrar virkj­unar sem hætt var við kom önnur, sem kennd er við ...?

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá tvö stærstu orr­ustu­skip sög­unnar. Hvaða þjóð smíð­aði þessi 73.000 tonna flykki?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Pólland.

2.  Portúgal.

3.  Bíla­leigur.

4.  Icelandair.

5.  Bólusótt.

6.  Cardiff og Swansea.

7.  Blá.

8.  Grænir.

9.  Eyja­bakka.

10.  Kára­hnjúka.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Loðvík 14. Frakka­kóngur.

Á neðri mynd­inni eru japönsku orr­ustu­skipin Mushashi og Yamato.

***

Lítið á hlekk­ina hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár