468. spurningaþraut: Þykjustugangur og hin endanlegu örlög

468. spurningaþraut: Þykjustugangur og hin endanlegu örlög

Fyrri mynda­spurn­ing:

Hvað heitir konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hversu marga afkom­endur á Elísabet Breta­drottn­ing? Hér má aðeins skeika einum.

2.  Hvað hét „eld­klerk­ur­inn“ svo­nefndi fullu nafni?

3.  Við hvað fékkst Bernard Montgomery í líf­inu?

4.  Hvað gerði Tenzing Norgay fyrstur allra — eða í félagi við annan mann?

5.  Hvað hét blaðið sem Kvenna­fram­boðið í Reykja­vík hóf útgáfu á árið 1982 og kom svo út í rúm 20 ár?

6.  Hvaða ríki til­heyra eyj­arnar Naxos, Thassos og Skyros?

7.  Cristina Kirchner hefur verið vara­for­seti í landi einu síðan 2019. Svo und­ar­lega háttar að hún hefur áður verið for­seti í sama landi, eða 2007-2015. Og þar áður var hún for­seta­frú í land­inu 2003-2007. Hvaða land er hér um að ræða?

8.  Hvaða sagn­orð er hægt að nota bæði um þykjustu­gang og hin end­an­legu örlög?

9.  Hvað heitir fjöl­menn­asta borg Kína?

10.  Hvenær gaus Öræfa­jök­ull síð­ast? Hér má skeika 20 árum.

***

Seinni mynda­spurn­ing:

Hver er ungi mað­ur­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Þeir eru 23, svo rétt telst vera 22-24.

2.  Jón Stein­gríms­son.

3.  Hann var breskur her­for­ingi.

4.  Gekk á Everest-fjall.

5.  Vera.

6.  Grikk­landi.

7.  Argent­ínu.

8.  Að lát­ast.

9.  Shanghaí.

10.  Jök­ull­inn gaus 1727. Rétt telst því vera 1702-1742.

***

Svör við mynda­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er fjöl­miðla­stjarnan Kim Kar­dasian.

Á neðri mynd­inni er auð­mað­ur­inn Jeff Bezos ögn yngri en hann er núna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár