447. spurningaþraut: Í einni spurningunni hér blasir svarið við!

447. spurningaþraut: Í einni spurningunni hér blasir svarið við!

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir áin á miðri mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í hvaða landi er borgin Genf?

2.  Hve mörg tungl í sól­kerf­inu okkar hafa sín eigin tungl, eitt eða fleiri?

3.  Hver er stærsti þétt­býl­iskjarn­inn í sveit­ar­fé­lag­inu Ölfus?

4.  Þórunn Egils­dóttir þing­maður lést fyrir nokkru, langt fyrir aldur fram. Hún var á þingi fyrir ...?

5.  Rappari einn banda­rískur er einkar vin­sæll og raunar tal­inn af mörgum full­trúi fram­tíð­ar­innar í rapp­inu. Hann hefur gefið út plöt­urnar Pluto, Honest, DS2, Evol, Future, Hndrxx, The Wizard og High Off Life. Hann heitir í raun og veru Nayvadius DeMun Wilburn en kallar sig ...

6.  Jón Gnarr og Sigurjón Kjart­ans­son slógu fyrst ræki­lega í gegn þegar þeir birt­ust fyrir ald­ar­fjórð­ungi í þætt­inum Dags­ljós­inu í Rík­is­sjón­varp­inu þar sem þeir fjöll­uðu um þrennt það, sem hver maður þarf að kunna — það er að segja ...?

7.  Síðar hafa þeir yfir­leitt komið fram saman undir heit­inu ...?

8.  Hvar bjuggu þrí­brotar endur fyrir löngu?

9.  Hvað nefn­ast íslensku sviðs­lista­verð­launin?

10.  Í hvaða landi var Horthy ein­ræð­is­herra á árum milli stríða og mest­alla síð­ari heims­styrj­öld­ina?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða fyr­ir­tæki hefur lógóið hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Sviss.

2.  Ekkert.

3.  Þor­láks­höfn.

4.  Fram­sókn­ar­flokk­inn.

5.  Future.

6.  Hegðun, atferli, fram­komu.

7.  Tvíhöfði.

8.  Í sjónum.

9.  Gríman.

10.  Ung­verja­landi.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Áin heitir Colorado (hún rennur þarna um Miklagljúfur, eða The Grand Canyon.)

Vöru­merkið eða lógóið not­ast vef­versl­unin Amazon við.

***

Gætið svo að hlekkjum hér fyrir neðan! Þar leyn­ast ótal spurn­inga­þrautir aðrar!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár