446. spurningaþraut: Er Loki kominn í tísku?

446. spurningaþraut: Er Loki kominn í tísku?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er sá frægi Íslend­ingur sem sést á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Fyr­ir­tækið Nokia var um tíma um síð­ustu alda­mót í far­ar­broddi í fram­leiðslu far­síma, þótt fyr­ir­tækið hafi svo misst af lest­inni þegar snjall­símar komu til sög­unnar. En áður en Nokia hóf fram­leiðslu á far­símum, þá var það þekkt á Íslandi fyrir að fram­leiða allt aðrar vörur. Hverjar þá?

2.  Í hvaða landi er Nokia ann­ars upp­runnið?

3.  Hvað heitir stærsta stöðu­vatnið á Suð­ur­landsund­ir­lend­inu fyrir utan Þing­valla­vatn?

4.  Sjón­varps­s­ería um sprelli­guð­inn Loka hefur verið vin­sæl að und­an­förnu en hún er hluti af bíó- og sjón­varps­fram­leiðslu hvaða stór­fyr­ir­tækis?

5.  Í nor­rænu goða­fræð­inni guð­inn Loki gjarnan kenndur við móður sína. Hann er sem sagt ...?

6.  Loki á nokkur börn, og með jötna­stúlku einni eign­að­ist hann til dæmis úlf einn mik­inn. Hvað heitir sá úlfur?

7.  En Loki eign­að­ist líka eina fer­lega dóttur sem ræður ríkjum í und­ir­heimum. Hvað heitir hún?

8.  Og enn af afkvæmum Loka — hann brá sér einu sinni í mer­ar­líki og eign­að­ist þá átt­fætt fol­ald, sem síðar varð hestur Óðins aðal­guðs. Hvað hét hann?

9.  Hver af þessum var EKKI keis­ari í Róma­veldi hinu forna: Avitus, Augustus, Bar­barossa, Caracalla, Geta, Elaga­balus, Romulus, Tacitus?

10.  Hvaða per­sónu ætl­aði Davíð Stef­áns­son skáld að „syngja heim í dal­inn, þar sem ég ætla að byggja og nema land“.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Annar frægur Íslend­ingur, hver er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gúmmí­stíg­vél.

2.  Finn­landi.

3.  Apavatn.

4.  Marvel.

5.  Lauf­eyj­ar­son.

6.  Fenrir, Fenris­úlfur.

7.  Hel.

8.  Sleipnir.

9.  Bar­barossa. Hann var að vísu keis­ari í hinu svo­nefnda „heilaga róm­verska ríki“, en það er allt annað en Róma­veldi hið forna. Allir hinir voru Róm­ar­keis­arar um lengri eða skemmri tíma, Avitus og Romulus að vísu bara í vest­ur­rík­inu.

10.  Dísu í Dala­kof­anum.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er söngv­ar­inn Damon Albarn, sem nú er orð­inn íslenskur rík­is­borg­ari sem kunn­ugt er.

Á neðri mynd­inni er söng­konan Bríet.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár