445. spurningaþraut: Hver var heimilisfastur í Bastillunni?

445. spurningaþraut: Hver var heimilisfastur í Bastillunni?

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan? Hún er reyndar ívið eldri núna en á þess­ari mynd?

***

1.  Hvaða þétt­býl­is­staður er milli Þor­láks­hafnar og Stokks­eyrar?

2.  Í hvaða heims­álfu er ríkið Oman?

3.  Í hvaða ríki kom til hroða­legra fjöldamorða í upp­gjöri Tútsa og Hútúa á síð­asta ára­tug síð­ustu aldar?

4.  Hver er stærsti fisk­ur­inn sem í sjónum syndir?

5.  En hvað heitir stærsta skötu­teg­undin?

6.  Djöf­ull­inn ber mörg nöfn eins og allir vita. Eitt þeirra er Lúsífer. Hvað þýðir það?

7.  Hvað hét pilt­ur­inn í íslenskum þjóð­sögum sem vildi selja sál sína djöfl­inum í skiptum fyrir visku?

8.  Einn helsti leik­rita­höf­undur þjóð­ar­innar í byrjun 20. aldar skrif­aði um það mál leik­rit. Hver var höf­und­ur­inn?

9.  Í hvaða borg var Bastillan?

10.  Í Bastill­unni var eitt sinn heim­il­is­fastur karl nokkur sem þótti skelfi­legt kvik­indi og hafði raunar sér­staka nautn af því að kvelja aðra. Hann skrif­aði mikið um þá hvöt sína til að rétt­læta hana og útbreiða fagn­að­ar­er­indið. Hvað hét þessi karl?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða ríki til­heyrir eyjan sem þarna má sjá aðeins til vinstri á mynd­inni?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Eyr­ar­bakki.

2.  Asía.

3.  Rúanda.

4.  Hval­háfur. Hval­há­karl telst líka rétt.

5.  Djöflaskata.

6.  Ljósberi.

7.  Loftur.

8.  Jóhann Sig­ur­jóns­son.

9.  París.

10.  Sade.

***

Á efri mynd­inni er Margrét Dana­drottn­ing, en á neðri mynd­inni eyjan Súlavesí sem til­heyrir Indónesíu.

Sjá hér ögn víð­ari mynd!

***

En gáið svo að hlekkjum á næstu þrautir hér fyrir neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár