Ingó Veðurguð afboðaður á Þjóðhátíð eftir ásakanir

Tón­list­ar­mað­ur­inn Ingólfur Þór­ar­ins­son stýrir ekki brekku­söng á þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum eftir að und­ir­skrift­ar­listi kvenna var birtur.

Ingó Veðurguð afboðaður á Þjóðhátíð eftir ásakanir
Ingó Veðurguð Ingólfur Þór­ar­ins­son hefur boðað mála­ferli.

„Það skal upp­lýst að Ingólfur Þór­ar­ins­son – Ingó veð­urguð – mun ekki ann­ast brekku­söng á Þjóð­há­tíð né koma fram á hátíð­inni í ár,“ segir í yfir­lýs­ingu Þjóð­há­tíð­ar­nefndar ÍBV. 

Yfir 130 konur kröfð­ust þess að Ingó spil­aði ekki á hátíð­inni. Þá birt­ust tutt­ugu sögur um meinta ofbeld­is­hegðun hans um helg­ina hjá hópnum Öfgum á TikTok og bætt­ust fleiri við í gær.

Ingólfur sagði í sam­tali við Vísi um helg­ina að hann ætl­aði í mála­ferli. „Maður er orð­inn ringlaður. Ég veit hver ég er og hvað ég hef gert og ég held að það sem er satt eigi eftir að koma í ljós. Svona á ekki að vera hægt að gera gagn­vart ein­stak­lingi og ég á eftir að skoða hvað ég geri. Ég mun leita réttar míns og er byrj­aður á því.“

Frá­sagnir kvenn­anna lýsa allt frá mik­illi ágengni gagn­vart stúlkum undir lög­aldri yfir í kyn­ferð­is­brot. Hópurinn segir rétt að vísa í hann sem slíkan frekar en í ein­stak­linga innan hans, þar sem engin ein mann­eskja sé í for­svari fyrir hann. Í yfir­lýs­ingu frá öfgum í gær sagði: „Við í Öfgum höfum tekið við fjölda frá­sagna frá konum síð­ustu tvö ár. Frá­sagn­irnar eru nafn­lausar til að vernda þolendur auk þess hefur meintur ger­andi ekki verið nefndur á nafn þó svo að um sama aðila sé að ræða í öllum frá­sögn­unum. Öll kenni­leiti hafa verið fjar­lægð til að ekki sé hægt að tengja frá­sagn­irnar við ákveð­inn mein­tan ger­enda. Einnig höfum við rætt við þolendur og séð myndir af áverkum. Stór hluti meintra þolenda var undir lög­aldri þegar meint brot áttu sér stað. Við munum aldrei rjúfa trúnað við þær sem hafa treyst okkur fyrir frá­sögnum sínum. Þolendur hafa rétt á að segja sínar sögur, nafn­lausar eða undir nafn,i án þess að almenn­ingur heimti nafn­grein­ingu á meintum ger­anda og að hann sér ákærður og dreg­inn fyrir dóm.“

Þjóð­há­tíð­ar­nefnd til­kynnti á föstu­dag að Ingó myndi stýra brekku­söngnum á kom­andi Þjóð­há­tíð um versl­un­ar­manna­helg­ina. Hópurinn Öfgar hafði þá þegar beðið Þjóð­há­tíð­ar­nefnd um lista yfir þá sem kæmu fram á Þjóð­há­tíð og boðið fram ráð­gjöf sína „varð­andi upp­setn­ingu á dag­skrá sem úti­lok­ar ekki kon­ur og ræður meinta af­brota­menn“.

„Þessi ákvörðun nefnd­ar­innar svarar fyrir sig sjálf og verður ekki rædd frekar af hennar hálfu,“ segir í nið­ur­lagi til­kynn­ing­ar­innar frá Þjóð­há­tíð­ar­nefnd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ingó afbókaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár