414. spurningaþraut: Grænn kall, verðandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fleira

414. spurningaþraut: Grænn kall, verðandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fleira

Þrautin frá í gær.

***

Auka­spurn­ing sú hin fyrri:

Hvað heitir græni kall­inn hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða vin­sæla hljóm­sveit sendi frá sér lagið Hungry Like the Wolf árið 1982?

2.  Hvaða núver­andi þing­maður á Alþingi varð doktor í hag­fræði 2013 en lauk fimm árum síðar leið­sögu­manns­prófi á háskóla­stigi?

3.  Í hvaða landi er borgin Jóhann­es­ar­borg?

4.  Hvaða fót­boltalands­lið er nú Evr­ópu­meist­ari í karla­flokki?

5.  En í kvenna­flokki?

6.  Saga Anne Boleyn Eng­lands­drottn­ingar hefur margoft verið sýnd á hvíta tjald­inu og í sjón­varpi. Nú er nýbúið að frum­sýna eina sjón­varps­s­eríu enn um hana þar sem Jodie Turner-Smith fer með hlut­verk hennar. Hún þykir leika hlut­verk sitt vel en valið á henni var þó umdeilt. Hvers vegna?

7.  Í byrjun 19. aldar hugð­ist valda­maður einn skemmta sér og vinum sínum með kan­ínu­veiðum en sá leið­angur end­aði með því að hann og vin­irnir þurftu að leggja á hraðan flótta undan kan­ínu­fjöld sem sótti að honum. Hvaða mikli valda­maður var þetta?

8.  Hver sér um spurn­inga­keppn­ina Gáfna­ljósið á Rás eitt?

9.  Hvað fram­leiðir fyr­ir­tækið Scania fyrst og fremst?

10.  Við hvaða fjörð stendur Nes­kaup­staður?

***

Auka­spurn­ing sú hin síð­ari:

Konan á mynd­inni hér að neðan náði góðum árangri í próf­kjöri Sjálf­stæð­is­flokks­ins á dög­unum og er á leið á þing. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Duran Duran.

 

2.  Ólafur Ísleifs­son.

3.  Suður-Afríka.

4.  Portúgal.

5.  Holland.

6.  Hún er svört — sem Anne Boleyn var ekki.

7.  Napóleon.

8.  Vera Ill­uga­dóttir.

9.  Vörubíla (og trukka af ýmsu tagi).

10.  Norð­fjörð.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Græni kall­inn heitir Shrek.

Þing­mað­ur­inn verð­andi heitir Diljá Mist.

***

Og hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár