413. spurningaþraut: Af hverju tók enginn eftir konungsfjölskyldunni?

413. spurningaþraut: Af hverju tók enginn eftir konungsfjölskyldunni?

Þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing: Í febr­úar 1953 lenti far­þega­flug­vél frá Danmörku í New York. Fjöldi blaða­manna beið eftir vél­inni. Um borð var danska kon­ungs­fjöl­skyldan en það var samt ekki það fólk sem blaða­menn­irnir biðu eftir, heldur vildu þeir kom­ast í tæri við kon­una á mynd­inni hér að ofan. Hún hét Christine Jorg­en­sen og var reyndar banda­rísk en ekki dönsk, þótt hún hafi vissu­lega átt ættir að rekja til Dan­merkur. En hvers vegna voru blaða­menn­irnir svo spenntir fyrir komu hennar?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Eyja ein er gríð­ar­stór — eða 55.000 fer­kíló­metrar, sem er meira en helm­ing­ur­inn af Íslandi. Hún er talin 27. stærsta eyja í öllum heim­inum. Þar býr samt eng­inn, ekki nokkur ein­asti maður. Hvaða ríki til­heyrir þessi eyja?

2.  Ekki er algengt að lönd séu kennd við jurtir en eitt ríki í ver­öld­inni er þó kennt við stórt tré af belg­jurta- eða bauna­ætt. Viður af þessu tré var og er eft­ir­sóttur vegna þess hve rauð­leitur hann er. Hvaða land er hér um að ræða?

3.  Hvað heitir sundið milli Viðeyjar og Reykja­víkur?

4.  Jón Ögmunds­son tók í byrjun tólftu aldar við nýju starfi, fyrstur manna. Hvað var það?

5.  Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra Breta gekk í hjóna­band um dag­inn. Hvað heitir hin lukku­lega frú hans — og hér dugar for­nafnið?

6.  Í hvaða landi er borgin Tampere?

7.  Hvaða hljóm­sveit sendi frá sér plöt­una Máva­stellið?

8.  Hvaða tón­list­ar­maður eða tón­list­ar­menn unnu Eurovision keppn­ina um dag­inn?

9.  Hvaða starfi gegndi Anne Boleyn í þrjú ár á fyrri hluta 16. aldar?

10.  Einar Arn­órs­son, Björn Jónsson, Hannes Hafstein, Kristján Jónsson og Sigurður Eggerz. Hvað eiga þessir fimm karlar sam­eig­in­legt — og aðeins þeir?

***

Seinni auka­spurn­ing: Hver er karl­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kanada. Eyjan heitir Devon.

2.  Brasilía.

3  Við­eyj­ar­sund

4.  Biskup á Hólum. „Biskup“ eitt og sér dugar eki.

5.  Carrie.

6.  Finn­landi.

7.  Grýl­urnar.

8.  Måneskin.

9.  Hún var drottn­ing Englands.

10.  Þeir voru ráð­herrar á tímum heima­stórn­ar­innar 1904-1917 þegar ráð­herra Íslands var aðeins einn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Christine Jorg­en­sen var ein af fyrstu trans­kon­unum sem vöktu veru­lega athygli á Vest­ur­löndum.

Á neðri mynd­inni er Nasser leið­togi Egifta­lands.

***

Og loks, þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár