412. spurningaþraut: Hvar er Llanfair­pwllgwyn og svo framvegis?

412. spurningaþraut: Hvar er Llanfair­pwllgwyn og svo framvegis?

Hér leyn­ist undir hlekkur á þraut­ina frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað er næst fjöl­menn­asta sveit­ar­fé­lag á Íslandi? 

2.  Í hvaða landi er bæj­ar­fé­lagið Llanfair­pwllgwyngyll­gogery­chwyrn­drobwll­llan­tysilio­gogo­goch? Hér þarf nákvæmt svar.

3.  Ragn­hildur Helga­dóttir sat á þingi frá 1956 til 1991 en að vísu með tveimur hléum. Hún var jafn­framt ráð­herra í fjögur ár. Fyrir hvaða flokk?

4.  Faðir Ragn­hildar var læknir og kom mikið við sögu í frægu póli­tísku hneyksl­is­máli sem brast á með látum einmitt sama ár og Ragn­hildur fædd­ist. Hvað er þetta hneyksl­is­mál kallað?

5.  „Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrr­lát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrr­lát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkr­inu í.“ Hver samdi?

6.  Hvar voru höf­uð­bæki­stöðvar Medici-ætt­ar­innar þegar hæst bar á 15. og 16. öld?

7.  Bleikja og urriði eru und­ir­teg­undir hvaða fisks?

8.  Hvað hét eig­in­kona Abrahams, sem eign­að­ist son nærri hund­rað ára gömul?

9.  Hvaða nafn fékk son­ur­inn?

10.  Breti einn fædd­ist árið 1790. Hann hét George að skírn­ar­nafni en eft­ir­nafn hans er einmitt það sem ég er nú að spyrja um. Við hann er kennt ákveðið fyr­ir­bæri í nátt­úr­unni sem flestir eða allir þekkja, en hann var sjálfur alveg á móti því að það fengi nafn af sér — enda hafði hann enga per­sónu­lega reynslu af því. Nær­tæk­ari nöfn á fyr­ir­bær­inu eru til dæmis Qomolangma, Deo­d­ungha eða jafn­vel 珠穆朗瑪峰. En nafnið hans George virð­ist fast á þessu fyr­ir­bæri. Hvað hét hann að eft­ir­nafni?

***

Seinni auka­spurn­ing:

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kópa­vogur.

2.  Veils. Bretland dugar ekki — ekki einu sinni þótt Veils hafi raunar heitið Bretland til forna.

3.  Sjálf­stæð­is­flokk­inn.

4.  Stóra bomban (1930).

5.  Davíð Stef­áns­son.

6.  Flórens.

7.  Silungs.

8.  Sara.

9.  Ísak.

10.  Everest.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá film­stjörn­una Marilyn Monroe.

Myndina alla má sjá hér til hliðar.

Neðri myndin var tekin í Berlín — eins og sjá má á Brand­en­borg­ar­hlið­inu neðst til hægri.

***

Hér leyn­ist enn undir hlekkur á þraut­ina frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár