411. spurningaþraut: Hvaða bragði er beitt í Óvitum?

411. spurningaþraut: Hvaða bragði er beitt í Óvitum?

Þing­manna­þrautin frá í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Cordelía heitir kona ein í leik­riti eftir Shakespe­are. Faðir hennar krefst þess að hún smjaðri fyrir sér en hún neitar og er þá sett út af sakra­ment­inu. Hvað heitir leik­rit þetta?

2.  Elisa­beth Bennet heitir aftur á móti kona ein í skáld­sögu, sem verður ást­fangin af herra Darcy. Hvað heitir sú skáld­saga?

3.  Og hver skrif­aði hana?

4.  Trent Alex­ander-Arnold heitir ungur íþrótta­maður. Í hvaða íþrótta­grein hefur hann látið að sér kveða á und­an­förnum árum?

5.  Um 1600 er sagt að maður að nafni Þórður hafi beðið á afskekktum stað eftir komu Odds bisk­ups Ein­ars­sonar. Biskup lét bíða eftir sér, svo Þórður lagði af stað út í óvissu, en orti fyrst vísu þessa: „Biskups hef ég beðið með raun, / og bitið lít­inn kost. /  Áður en ég lagði á [HVAÐ] / át ég þurran ost.“ Hvert lá leið Þórðar?

6.  Við Hagatorg í Reykja­vík standa tveir skólar og kirkja á milli. Hvað heita skól­arnir?

7.  Hvað heita stærstu bíla­verk­smiðjur Suður-Kóreu?

8.  Í hvaða á er hinn eini sanni Gullfoss?

9.  Hvað heitir íslenska skipa­fé­lagið sem lengi hélt úti skipum sem hétu Gullfoss?

10.  Óvitar heitir barna­leik­rit eftir Guðrúnu Helga­dóttur sem er reglu­lega sett upp. Þar er beitt ákveðnu „trixi“ sem þykir ganga mjög skemmti­lega upp. Hvaða „trix“ er það?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Lér kon­ungur.

2.  Hroki og hleypi­dómar, Pride and prejudice.

3.  Jane Austen.

4.  Fótbolta.

5.  Ódáða­hraun.

6.  Mela­skóli og Haga­skóli.

7.  Hyundai.

8.  Hvítá.

9.  Eim­skipa­fé­lagið.

10.  Börn leika full­orðna, full­orðnir leika börn.

***

Svör við auka­spurn­ingum.

Á efri mynd­inni má sjá „rauða blett­inn“ á reiki­stjörn­unni Júpíter.

Um er að ræða gríð­ar­legan storm í skýja­hulu gas­ris­ans.

Þótt blett­ur­inn virð­ist lít­ill er þver­mál hans í raun meira en þver­mál Jarð­ar­innar. 

Ekki er mælt með ferða­lögum í storm þennan.

Á neðri mynd­inni er hins vegar hluti af fána Brasilíu.

Sjá má hann í heild hér til hliðar.

***

Og gleymið eigi að leysa þing­manna­þraut­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár