415. spurningaþraut: Tvær söngkonur, tveir karlkyns tónlistarmenn, vísindamenn og pólitíkusar

415. spurningaþraut: Tvær söngkonur, tveir karlkyns tónlistarmenn, vísindamenn og pólitíkusar

Þraut í gær.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvaða dýr má sjá á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvaða rapp­ari sendi frá sér plöt­una My Dark Twisted Fantasy árið 2010?

2.  En hvaða tón­list­ar­maður samdi verkið Vorblót, sem frum­flutt var 1913?

3.  Í Alþing­is­kosn­ingum 1983 fengu tveir nýir flokkar eða listar menn kjörna á þing. Annar flokk­anna var — leynt eða ljóst — klofn­ings­flokkur frá Alþýðu­flokknum. Hvað nefnd­ist hann?

4.  Og hver var for­maður þess flokks?

5.  En hver var hinn nýi flokk­ur­inn sem fékk menn kjörna 1983?

6.  Hver setti fram afstæð­is­kenn­ing­una?

7.  Hvaða staðir voru Treblinka, Sobibor, Majdanek og Maut­hausen?

8.  Hvað hét ung stúlka af kyni frum­byggja í Norður-Ameríku sem kom við sögu enskrar nýlendu í álf­unni upp úr 1600?

9.  Hverrar þjóðar var hin víð­fræga nunna móðir Teresa?

10.  Hvað hét söng­konan sem söng bæði með Hljómum og Trúbrot?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er konan hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Kanye West.

2.  Stra­vin­skí.

3.  Bandalag jafn­að­ar­manna.

4.  Vil­mundur Gylfason.

5.  Kvenna­list­inn.

6.  Einstein.

7.  Útrým­ing­ar­búðir þýskra nas­ista í seinni heims­styrj­öld­inni. 

8.  Pocahontas.

9.  Albönsk

10.  Shady Owens.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni má sjá ungt leti­dýr.

Á neðri mynd­inni er Amy sál­uga Winehouse.

***

Já, þraut í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár