416. spurningaþraut: Óvenju margar spurningar um tölur. Það er reyndar bara tölfræðileg tilviljun

416. spurningaþraut: Óvenju margar spurningar um tölur. Það er reyndar bara tölfræðileg tilviljun

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn, sem sjá má á mynd­inni hér að ofan, með Önnu dóttur sinni?


Aðal­spurn­ingar:

  1. Nýjasta og full­komn­asta flug­véla­móð­ur­skip Banda­ríkj­anna var tekið í notkun 2017. Það heitir eftir einum for­seta lands­ins, reyndar einum þeirra sem setið hafa STYST í starfi. Síðan á 19. öld hefur aðeins einn for­seti setið skemur en þessi (fyrir utan nátt­úr­lega Biden). Hver er þessi skamm­setni for­seti sem samt er heiðr­aður með svona risa­stórri víg­vél?
  2. Hversu marga fætur hefur kónguló?
  3. En sporð­drek­inn, hve margir eru fætur hans?
  4. Hversu margir metrar eru í hektó­metra?
  5. Í hvaða landi er borgin Aleppo?
  6. Hvaða hljóm­sveit flutti lögin Another One Bites the Dust og I Want to Break Free?
  7. En hver samdi þessi lög?
  8. Hvað er prím­tala?
  9. Og hver er þá lægsta prím­talan fyrir ofan 10?
  10. Sjón­varps­s­er­ían Systra­bönd var afar umdeild fyrir nokkrum mán­uðum. Serían sner­ist um þrjár konur sem burð­ast með leynd­ar­mál á bak­inu, en hver lék lög­reglu­kon­una, sem rann­sak­aði málið ásamt ungum rann­sókn­ar­lög­reglu­manni af karl­kyni?

Seinni auka­spurn­ing:

Hvaða sund má sjá á mynd­inni hér að neðan?


Svör við aðal­spurn­ingum:

  1. Gerald Ford.
  2. Átta.
  3. Átta.
  4. Hundrað.
  5. Sýrlandi.
  6. Queen.
  7. Bassa­leik­ar­inn Deacon.
  8. Tala sem engin önnur tala (nema 1) gengur upp í.
  9. Ellefu.
  10. Halldóra Geir­harðs­dóttir.

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Franklin Delano Roosevelt, síðar Banda­ríkja­for­seti.

Á neðri mynd­inni er Ber­ings­sund milli Síberíu og Alaska.

Betur má sjá sundið á mynd­inni hér til hliðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár