417. spurningaþraut: Rammíslenskar spurningar á þjóðhátíðardaginn

417. spurningaþraut: Rammíslenskar spurningar á þjóðhátíðardaginn

Þraut frá í gær.

***

Í til­efni þjóð­há­tíð­ar­dags­ins verða allar spurn­ing­arnar í dag um Ísland eða Íslend­inga á einn eða annan hátt.

Og fyrri auka­spurn­ingin er til dæmis þessi:

Hvaða íslenska hljóm­sveit stillir sér upp á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  „Svo er sagt, að menn skyldu fara úr Noregi til Færeyja; nefna sumir til [...] vík­ing; en þá rak vestur í haf og fundu þar land mikið.“ Svo segir í Landnámu. Hvað nefn­ist vík­ing­ur­inn sem fyrstur fann Ísland sam­kvæmt þess­ari frá­sögn?

2.  „Þá kom maður hlaup­andi og sagði að jarð­eldur var upp kom­inn í Ölfusi og mundi [hraunið] hlaupa á bæ Þórodds goða [sem tekið hafði kristni]. Þá tóku heiðnir menn til orðs: „Eigi er undur í, að goðin reið­ist ...“ Þá mælti [einn við­staddra]: „Um hvað reidd­ust goðin, þá hér brann hraunið, er nú stöndum vér á?“ — Svo segir í Kristni­sögu, en hver mælti svo sköru­lega?

3.  „Allir vildu [HVERJA] kveðið hafa.“ Svo segir mál­tækið og á við kvæði sem hét ...?

4.  Íslend­ingar hafa gjarnan stært sig af því gegnum tíð­inda að vera allir komnir af Jóni bisk­upi Arasyni sem uppi var á fyrri hluta 16. aldar. Þá gleym­ist yfir­leitt að sé svo, þá eru þeir jafn­framt allir komnir af konu Jóns bisk­ups — sem nefnd­ist að vísu fylgi­kona, en ekki eig­in­kona, þar eð hann var guðs­maður. En hvað hét kona Jóns Arasonar? Fornafn hennar nægir.

5.  Og þá liggur nú beint við að leggja fram hina klass­ísku Trivial-spurn­ingu: Hvað hét kona Jóns Sig­urðs­sonar sem nefndur var for­seti? Að þessu sinni verður fullt nafn að skila sér.

6.  Hvaða fjörður er á milli Siglu­fjarðar og Ólafs­fjarðar?

7.  Snemma á 20. öld reis havarí mikið við Reykja­vík­ur­höfn þegar ungur maður reri þar um fána sem margir töldu tákn um sjálf­stætt Ísland. Hvernig var sá fáni?

8.  Maður nokkur stofn­aði um svipað leyti félagið Títan. Fyrir hverju átti það að beita sér?

9.  Nafnið á frægu fjalli íslensku er talið merkja „flögu­stein“ sem gjarnan var not­aður til að kveikja eld í eld­stæði. Hvaða fjall á Íslandi heitir því (lík­lega) í raun­inni Flögu­steinn?

10.  Hvaða ár fengu íslenskar konur kosn­inga­rétt?  

***

Seinni auka­spurn­ing:

Að gefnu til­efni, hvaða staður er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Naddoddur, Naddoður.

2.  Snorri goði.

3.  Lilju.

4.  Helga.

5.  Ingi­björg Ein­ars­dóttir.

6.  Héð­ins­fjörður.

7.  Hvítur kross á bláum grunni, „blá­hvíti fán­inn“.

8.  Virkjun fossa.

9.  Esjan.

10.  1915.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hljóm­sveit Ólafs Gauks.

Með henni tróð upp söng­konan Svan­hildur Jak­obs­dóttir.

Á neðri mynd­inni er aftur á móti Vík í Mýrdal, sögu­svið sjón­varps­s­er­í­unnar Kötlu sem sýn­ingar hefj­ast á á Netflix í dag.

***

Og þrautin frá í gær.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár