418. spurningaþraut: Feðgin á forsetastóli, og lárviðarstig í boði!

418. spurningaþraut: Feðgin á forsetastóli, og lárviðarstig í boði!

Athugið að nú er kom­inn hlekkur á síð­ustu þraut hér neðst. Ég birti samt hlekk­inn á hina ramm­ís­lensku þjóð­há­tíð­ar­þraut frá því í gær hérna — til öryggis.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Á mynd­inni má sjá skip sökkva út af Írlands­ströndum árið 1917. Hvað hét skipið?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Jón Atli Bene­dikts­son heitir maður sem gegnir virðu­legu starfi hér í ver­öld. Hvaða starf er það?

2.  Í frönsku borg­inni Le Mans er hald­inn kappakstur á hverju ári. Að hvaða leyti er sú keppni ólík flestum öðrum kappakst­ur­skeppnum?

3.  Og fyrst minnst er á kappakstur: Hver af þessum öku­mönnum hefur EKKI orðið heims­meist­ari í Formúlu 1 keppn­inni? — Fernando Alonso, Jenson Button, David Coulthard, Lewis Hamilton, Kimi-Matias Räikkönen, Nico Rosberg, Sebast­ian Vettel .

4.  Simone Biles er ein­hver allra fremsta íþrótta­kona sam­tím­ans. Í hvaða grein keppir hún?

5.  En hvað hefur Kathryn Bigelow hins vegar feng­ist við í líf­inu?

6.  Winston Churchill hafði tvö mill­i­nöfn. Nefnið annað þeirra. Ef þið getið bæði, þá meg­iði sæma ykkur lár­við­ar­stigi!

7.  Susan Janet Ballion fædd­ist í Suður-London 1957. Hún tók sér annað nafn þegar hún stofn­aði ásamt fleirum hljóm­sveit árið 1976. Nafnið minnti á Indíána í Norður-Ameríku og hljóm­sveitin hennar not­aði þetta sama nafn að hluta til. Hljóm­sveitin starf­aði til 1996 en Ballion hóf þá sól­ó­feril, sem stóð í ára­tug en und­an­farið hefur lítið borið á henni. En hvað hét hljóm­sveitin hennar?

8.   Hvað heitir hafið norður af Kóla­skaga sem til­heyrir Noregi og Rúss­landi?

9.  Í hvaða kjör­dæmi býður Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir sig fram til Alþingis?

10.  Hvað heitir tré sem telst vera af ætt lít­illa eða með­al­stórra trjáa af ertu­blóma­ætt sem ber gul blóm í löngum hang­andi klösum og vex víða í görðum á Íslandi? 

***

Síðari auka­spurn­ing:

Ekki er algengt að feðgin hafi bæði gegnt for­seta­emb­ætti, en þess eru þó dæmi. Feðginin á mynd­inni hér að neðan voru til dæmis bæði for­setar í landi sínu — en reyndar hafa bæði verið sökuð um fer­lega spill­ingu og lent upp á kant við rétt­ar­kerfið þess vegna. Hvaða land er hér um að ræða?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hann er rektor Háskóla Íslands.

2.  Keppnin stendur í sól­ar­hring sam­fleytt.

3.  Coulthard.

4.  Fim­leikum.

5.  Kvik­mynda­leik­stjórn.

6.  Winston Leonard Spencer Churchill hét hann fullu nafni.

7.  Siouxsie and the Banshees.

8.  Barents­haf.

9.  Norð­vest­ur­kjör­dæmi.

10.  Gullregn.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Skipið hét Lusit­ania.

Á neðri mynd­inni eru feðginin Keiko og Alberto Fujimore fyrr­ver­andi for­setar Perú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár