419. spurningaþraut: Tvær spurningar um Alix Viktoriu Helenu Luise Beatrix!

419. spurningaþraut: Tvær spurningar um Alix Viktoriu Helenu Luise Beatrix!

Athugið að neðst í þess­ari spurn­inga­þraut eru nú komnir hlekkir bæði á síð­ustu þraut og þá næstu líku (þegar hún birt­ist á morgun!).

***

En hér er fyrri auka­spurn­ing dags­ins:

Hver er, eða öllu heldur var, konan á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Ballon d'Or heita eft­ir­sótt­ustu ein­stak­lings­verð­launin sem fót­bolta­manni geta hlotn­ast. Þau fær sá eða sú sem þykir hafa skor­ast fram úr öðrum á til­teknu ári. Hver hefur hlotið þessi verð­laun oftar en nokkur annar í karla­flokki?

2.  Í hvaða landi fædd­ist þöglu­mynda­stjarnan Greta Garbo?

3.  Árið 1872 fædd­ist í þýska fylk­inu Hessen prinsessa sem fékk nafnið Alix Viktoria Helene Luise Beatrix. Hún gekk síðar í hjóna­band og eign­að­ist fimm börn sem öll urðu frekar skamm­líf. Þrátt fyrir að hjóna­band prinsessunnar væri ást­ríkt er hún þó þekkt­ust fyrir sam­band sitt við annan karl­mann, en sá var — eða taldi sig að minnsta kosti vera — mik­ill guðs­maður. Hvað hét hann?

4.  Ef þið vitið yfir­leitt eitt­hvað um hana Alix, þá vit­iði vænt­an­lega hver var amma hennar í móð­ur­ætt­ina. Hún hét ... hvað?

5.  Hvað heitir sú skáld­saga eftir George Orwell þar sem Napóleon er ein aðal­per­sónan?

6.  Hvar á land­inu var fyr­ir­tækið Kjörís stofnað og er enn starf­rækt?

7.  Mick heitir maður, Jagger. Hversu mörg börn á hann? Hér má skeika einu barni til eða frá!

8.  Í hvaða landi er borgin Gron­ingen?

9.  Árið 2006 hóf Lands­bank­inn rekstur inn­láns­reikn­inga á net­inu á Bret­landi og síðan í Hollandi. Hvað nefnd­ust þessir reikn­ingar?

10.  En færri muna lík­lega hvað sam­bæri­legir reikn­ingar Kaup­þings hétu. Þeir voru skráðir í Bret­landi og ábyrgð af þeim féll því ekki á Ísland. En hvað hétu þeir reikn­ingar?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hver er á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Messi.

2.  Svíþjóð.

3.  Rasputin. Alix gekk að eiga Rússa­keis­ara, sem kunn­ugt er.

4.  Viktoria og var drottn­ing á Bret­landi.

5.  Dýrabær, Animal Farm.

6.  Hvera­gerði.

7.  Átta börn á hann. Rétt er því 7-9.

8.  Holland.

9.  Icesave.

10.  Edge, eða Kaupt­hing Edge.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Nefer­titi drottn­ing i Egifta­landi.

Á neðri mynd­inni er Anna Frank.

***

Hér að neðan eru svo hlekkir á síð­ustu spurn­inga og — í fyll­ingu tím­ans — þá næstu!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár