420. spurningaþraut: Hér eru samtals 12 spurningar um ýmislegt það sem griskt er!

420. spurningaþraut: Hér eru samtals 12 spurningar um ýmislegt það sem griskt er!

Athugið að hér neðst eru hlekkir á síð­ustu þraut, og svo þá næstu líka, þegar hún birt­ist!

En spurn­ing­arnar dags­ins snú­ast allar um Grikk­land á einn eða annan hátt.

Fyrri auka­spurn­ing:

Hvað heitir stærsta eyjan sem sjá má á mynd­inni hér að ofan? Hún til­heyrir Grikk­land, um það þarf ekki að fjöl­yrða.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Í fornöld var tog­streita mikil og oft stríð milli grískra borg­ríkja. Aþena bar lengi höfuð og herðar yfir önnur borg­ríki, en á fimmtu öld fyrir Krist töp­uðu Aþen­ingar þó löngu og erf­iðu stríði gegn öðru borg­ríki. Hvað hét það?

2.  Forn-Grikkir reistu nýlendur víða um lönd. Hvaða nýlenda þeirra utan Grikk­lands sjálfs var lengst af öfl­ug­ust í fornöld­inni?

3.  Grikk­land til forna var mikið feðra­veldi. Það er því dæmi­gert að ein nafn­kunn­asta konan í forn­grískri sögu er aðal­lega kunn fyrir að vera skap­vont skass. Eða svo segir sagan. Hún hét Xanþippa og var eig­in­kona frægs Forn-Grikkja. Hver var eig­in­mað­ur­inn?

4.  Önnur nafn­kunn kona var hins vegar rómuð skáld­kona þótt of fátt hafi varð­veist af kvæðum hennar. Núorðið er hún líka kunn fyrir að hafa að öllum lík­indum verið sam­kyn­hneigð, og sam­kyn­hneigð kvenna er raunar kennd við eyj­una Lesbos þar sem hún bjó. En hvað hét hún?

5.  Ein allra fræg­asta söng­kona 20. aldar var grísk, þótt hún væri raunar fædd í Banda­ríkj­unum árið 1923. Hvað hét hún?

6.  Hvað nefn­ist þessi gríski bók­stafur — Ω?

7.  Að hvaða löndum á Grikk­land landa­mæri? Nefna verður þau öll.

8.  Tvö grísk ljóð­skáld hafa fengið Nóbels­verð­laun í bók­menntum. Nefnið annað þeirra. Ef þið þekkið bæði meg­iði sæma sjálf ykkur lár­við­ar­stigi!

9.  Grikkir eru í ESB og nota evr­una — eins og frægt varð í efna­hag­skrepp­unni fyrir ára­tug. En hvað hét myntin sem þeir not­uðu áður?

10.  Fas­ista­flokkur virt­ist lík­legur til að ná miklu fylgi á Grikk­landi þegar verst lét í efna­hag­skrepp­unni. Sem betur fer hefur sljákkað í fylgi hans, en hvað nefn­ist sá flokkur?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum;

1.  Sparta.

2.  Sýrakúsa á Sikiley.

3.  Heim­spek­ing­ur­inn Sokrates.

4.  Saffó.

5.  Maria Callas.

6.  Omega.

7.  Albanía, Norður-Makedónía, Búlgaría og Tyrkland.

8.  Giorgos Seferis og Odysseus Elytis

9.  Drakma.

10.  Χρυσή Αυγή eða Gullin dögun á íslensku.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er eyjan Ródos.

Á neðri mynd­inni má sjá skipa­kóng­inn Onassis ungan að árum. 

Hann gekk síðar að eiga Jacqueline Kennedy, ekkju Johns F. Kennedys for­seta, og varð þá heil­mikið uppi­stand.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár