421. spurningaþraut: Hér er nú margt í mörgu, eins og karlinn sagði

421. spurningaþraut: Hér er nú margt í mörgu, eins og karlinn sagði

Hér neðst má sjá hlekki á næstu þraut á undan, og þá næstu á eftir — þegar hún kemur komin á sinn stað.

***

Auka­spurn­ingar:

Sú fyrri felst í að þið áttið ykkur á hvað skag­inn á skjá­skot­inu hér að ofan heitir.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Moussaka heitir réttur einn. Hann er afbrigði af kjöt­kássu­rétti sem þekktur er í mörgum löndum, en heitið „moussaka“ er þó tengt einu sér­stöku landi. Hvaða land er það?

2.  Dacca heitir höf­uð­borg ein. Í hvaða landi?

3.  Merlot heitir afbrigði af hvaða jurt?

4.  Hvað hét fyrsta kindin sem fædd­ist klónuð af annarri kind?

5.  Eitt fræg­asta tón­skáld Banda­ríkj­anna bar sama nafn og höf­uð­borg erlends ríkis. Hvaða nafn?

6.  Hvers vegna bar tón­skáldið þetta nafn? Hér eru fjórir mögu­leikar: A) Um var að kenna prent­villu. — B) Tón­skáldið fædd­ist í þess­ari til­teknu höf­uð­borg þótt það flytt­ist svo til Banda­ríkj­anna. — C) Faðir tón­skálds­ins var ætt­aður frá borg­inni. — D) Tón­skáldið vildi kenna sig við borg­ina vegna þess að það dáð­ist að því sam­blandi þjóð­legrar og klass­ískrar tón­listar sem þar var iðkuð. Hvað af þessu er rétt?

7.  Seabiscuit hét frægt dýr. Um þetta dýr hafa verið skrif­aðar bækur, gerðar heim­ild­ar­myndir og árið 2003 var frum­sýnd kvik­myndin Seabiscuit þar sem Tobey Maguire og Jeff Bridges fóru með aðal­hlut­verkið. Myndin var til­nefnd til Ósk­arsverð­launa sem besta mynd árs­ins, þótt hún hlyti þó verð­laun reyndar ekki. En hvernig dýr var Seabiscuit?

8.  Sofia Helin heitir tæp­lega fimm­tug sænsk leik­kona. Hvað heitir per­sónan sem hún er fræg­ust fyrir að leika?

9.  Í hvaða firði/flóa/vík/vogi er Her­gilsey?

10.  Hver var fyrsta konan sem varð dóms­mála­ráð­herra á Íslandi?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá skjá­skot úr mynd­inni Marshall, sem fjallar um merkan feril Thurgoods Mars­halls, sem var fyrsti svarti Hæsta­rétt­ar­dóm­ari Banda­ríkj­anna. Sami leik­ari fór í öðrum bíó­myndum með hlut­verk ann­arra braut­ryðj­enda svartra þar vest­an­hafs, svo sem hafna­bolta­leik­ar­ans Jackie Robinson og söngv­ar­ans James Brown. En leik­ar­inn var þó kunn­astur fyrir annað hlut­verk; þá lék hann ... hvern?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Grikk­land.

2.  Bangla­desj.

3.  Vínviður, vín­ber telst líka rétt.

4.  Dolly.

5.  Berlin.

6.  A) Nafn Irving Balines var mis­ritað á nótna­hefti, svo úr varð Berlin.

7.  Hestur.

8.  Saga. Hér er um að ræða per­sónu úr sjón­varps­s­er­í­unni Brúnni.

9.  Breiða­firði.

10.  Auður Auðuns. Rangt svar var gefið við þess­ari spurn­ingu framan af — skömm sé spurn­inga­höf­undi.

***

Á efri mynd­inni er Kamtsjaka.

Á neðri mynd­inni er Chadwick Boseman sem frægastur varð fyrir að leika Black Panter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár