422. spurningaþraut: Hér er spurt um aðeins einn þingmann Framsóknarflokksins

422. spurningaþraut: Hér er spurt um aðeins einn þingmann Framsóknarflokksins

Athugið að hlekkur á síð­ustu þraut er hér neðst!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Þjóðfáni hvaða ríkis blaktir á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Eitt fræg­asta fót­boltalið í ver­öld­inni hefur aðal­bæki­stöðvar sínar á velli sem kall­ast Camp Nou, þótt ensku­mæl­andi fót­bolta­á­huga­menn tali oft um Nou Camp. Hvað heitir þetta lið?

2.  Borgin, þar sem Camp Nou er nið­ur­komið, hún er höf­uð­borg í til­teknu sjálf­stjórn­ar­hér­aði í stóru Evr­ópu­ríki. Hvað heitir hér­aðið?

3.  Pandalus bor­ealis heitir dýra­teg­und ein, sem þrífst á og við Ísland. Dýr af þess­ari teg­und eru þeirrar nátt­úru að vera karl­dýr fyrstu árin en breyt­ast þá í kven­dýr. Þessi dýr eru lítil en nota­drjúg mjög og eft­ir­sótt fyrir mann­fólkið. Einu sinni varð stofnun ein eða almenn­ings­fyr­ir­tæki fyrir mik­illi gagn­rýni fyrir að ætla sér að hefja ræktun á risa­vax­inni teg­und þess­ara dýra. Hvaða dýr eru þetta?

4.  En hvaða stofnun eða fyr­ir­tæki var þetta?

5.  Hvað heitir sonur Joe Bidens Banda­ríkja­for­seta sem kom mjög við sögu þegar Trump og Repúblikanar reyndu að tengja hann við fjár­mála­hneyksli í ríki einu. Hér þarf sem sagt for­nafn son­ar­ins.

6.  En í hvaða ríki var það sem son­ur­inn átti að hafa staðið í ein­hverju vafasömu makki — þótt ekk­ert slíkt hafi sann­ast á hann?

7.  Matthew Barney heitir banda­rískur lista­maður sem var um tíma einn af „tengda­sonum Íslands“ eins og þeir karlar eru stundum kall­aðir í gamni sem ganga að eiga íslenskar konur. Hjóna­band Barneys og hinnar íslensku eig­in­konu hans lauk reyndar með skiln­aði, en hvað heitir hún?

8.  Í hvaða sveit­ar­fé­lagi er Gróttu­viti?

9.  Hvaða þing­maður ætlar ekki að taka sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Suð­ur­kjör­dæmi eftir að hafa lent í 3. sæti í próf­kjöri flokks­ins í kjör­dæm­inu?

10.  Hvaða frægi her­stjóri gerði inn­rás í Rússland árið 1812?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að neðan? Hann hefur elst nokkuð síðan við sáum hann síð­ast, skal tekið fram.

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Barcelona.

2.  Kata­lónía.

3.  Rækjur.

4.  Orku­veita Reykja­víkur.

5.  Hunter.

6.  Úkraína.

7.  Björk Guð­munds­dóttir.

8.  Sel­tjarn­ar­nesi.

9.  Silja Dögg.

10.  Napóleon.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Fáninn er fáni Indónesíu.

Og karl­inn á neðri mynd­inni?

Það er rúss­neski skák­meist­ar­inn Boris Spassky.

Hér til hliðar er ögn eldri mynd af honum.

Reynið svo við þraut­ina á undan, sjá hlekk fyrir neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár