423. spurningaþraut: Báðar aukaspurningar eru sprottnar frá Kötlu

423. spurningaþraut: Báðar aukaspurningar eru sprottnar frá Kötlu

Hlekkur á síð­ustu (og næstu) þraut er hér neðst.

***

Auka­spurn­ingar eru báðar sprottnar úr sjón­varps­s­er­í­unni Kötlu. Hér að ofan sjást drangar nokkrir sem ganga í sjó fram við Vík í Mýrdal, þar sem Katla ger­ist. Hvað heita þeir?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Undir hvaða jökli er eld­stöðin Katla?

2.  Hvaða ár lauk síð­ari heims­styrj­öld­inni?

3.  Barnung stúlka með fræga slöngu­lokka var ein vin­sælasta kvik­mynda­stjarna heims á fjórða ára­tugnum en síðan dró úr vin­sældum hennar þegar hún komst á tán­ings­aldur. Hún sett­ist í helgan stein rétt upp úr tví­tugu eða árið 1950. Hvað hét hún?

4.   Hasídar nefn­ist trúflokkur einn, sem kunnur er fyrir vanga­lokka mikla sem karl­menn safn­að­ar­ins ganga með. Hvaða megin trú­ar­brögðum til­heyra hasídar?

5.  Jógúrt er þekkt mjólk­ur­af­urð. Úr hvaða tungu­máli er orðið jógúrt komið?

6.  Hvað heitir höf­uð­borg Hvíta-Rúss­lands?

7.  Af hvaða kyni voru flestir nor­rænu guð­irnir sem við þekkjum úr hinni fornu goða­fræði?

8.  Nokkrir guðir voru þó af öðru kyni, sem minna er vitað um og jafn­vel talið að þeir séu úr eldri trú­ar­brögðum sem hin þekkt­ari ætt eða kyn ruddi úr vegi. Hvað nefn­ast þessir guðir?

9.  Ein allra þekktasta gyðjan úr nor­rænu goða­fræði er raunar af þessu síð­ar­nefnda kyni, það er frjó­sem­is­gyðjan ...?

10.  Hvað heitir danski fót­bolta­karl­inn sem hneig niður í leik á Evr­ópu­mót­inu á dög­unum?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi leik­kona fer með stórt hlut­verk í sjón­varps­s­er­í­unni Kötlu. Hvað heitir hún?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Mýr­dalsjökli.

2.  1945. 

3.  Shirley Temple.

4.  Gyð­ing­dómi.

5.  Tyrk­nesku.

6.  Minsk.

7.  Æsir.

8.  Vanir.

9.  Freyja.

10.  Christian Eriksen.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Drang­arnir heita Reyn­is­drangar.

Leik­konan heitir Íris Tanja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár