424. spurningaþraut: Ju Wenjun, Louise Glück og fleiri

424. spurningaþraut: Ju Wenjun, Louise Glück og fleiri

Hér neðst er hlekkur á síð­ustu þraut, takið eftir því.

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað kall­ast hinir breyti­legu vindar á Indlandi og Suð­austur-Asíu sem færa stundum með sér mikið regn?

2.  Í hvaða heims­álfu er landið Belize?

3.  Hvað er hnall­þóra?

4.  Í eina tíð deildu menn á Íslandi um hvort væri betri, Deutz eða Massey Ferguson. Hvaða fyr­ir­bæri voru — og eru — það?

5.  Högni Egilsson hefur lengst af verið kenndur við hljóm­sveit­ina ... ja, hvaða hljóm­sveit?

6.  Hin kín­verska Ju Wenjun er heims­meist­ari í kvenna­flokki á til­teknu sviði og hefur verið síðan 2017. Frá 1991 hafa fimm kín­verskar konur haldið heims­meist­aratitl­inum fyrir utan níu ár sem konur frá Ung­verja­landi, Rúss­landi, Búlgaríu og Úkraínu hafa setið á toppnum. Áður höfðu sov­éskar konur haldið heims­meist­aratign­inni í þess­ari grein í 40 ár. Hvaða grein?

7.   Louise Glück fékk ákveðna við­ur­kenn­ingu síð­ast­liðið haust. Fáir höfðu giskað á að henni myndi hlotn­ast heið­ur­inn sá. Hvaða við­ur­kenn­ing var þetta?

8.  Hvaða söng­kona gerði lagið „Það er draumur að vera með dáta“ ódauð­legt með öllu?

9.  Nanna Rögn­vald­ar­dóttir hefur unnið við skriftir og bóka­út­gáfu í ára­tugi og einkum verið kunn fyrir skrif á einu til­teknu sviði en um það hefur hún gefið út fjölda bóka. Hvaða svið er það?

10.  Hver leikur hót­el­stýruna á Hótel Vík í sjón­varps­s­er­í­unni Kötlu?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hver er hún, konan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Monsún.

2.  Norður-Ameríku.

3.  Þykk og mikil terta.

4.  Trakt­orar.

5.  Hjalta­lín.

6.  Skák.

7.  Nóbels­verð­laun í bók­menntum.

8.  Soffía Karls­dóttir.

9.  Mat­ar­gerð.

10.  Guðrún Gísla­dóttir.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Heinrich Himmler.

Á neðri mynd­inni er Helga Möller.

Hér fyrir neðan eru svo hlekkir á síð­ustu þraut og — frá og með morg­un­deg­inum — á þá næstu líka!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár