425. spurningaþraut: Drottning sem fæddist 1717 og arkitekt, fæddur 1755

425. spurningaþraut: Drottning sem fæddist 1717 og arkitekt, fæddur 1755

Athugið hlekki sem birt­ast fyrir neðan þessa spurn­inga­þraut. Þeir vísa til þraut­ar­innar í gær — og þraut­ar­innar á morgun, eftir að þessi dagur er lið­inn!

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver mál­aði mál­verkið sem sjá má hluta af hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Á þessum degi árið 1978 birt­ist fyrst fáni nokkur, sem hefur gengið í gegnum nokkrar breyt­ingar síðan, en er þó alltaf auð­þekkj­an­legur og raunar einn af þeim mest áber­andi í ver­öld­inni. Gilbert nokkur Baker hann­aði frum­gerð fán­ans. Hvaða fáni er þetta?

2.  Á þessum degi árið 1876 var aftur á móti háð orr­usta ein í Montana-ríki í Banda­ríkj­unum. Hátt í 300 manna her­flokkur Banda­ríkja­hers undir stjórn Custers ofursta var nærri alveg þurrk­aður út. Hvar var þessi orr­usta háð?

3.  Úr hópi and­stæð­inga Custers eru tveir lang­þekkt­astir. Nefnið að minnsta kosti annan þeirra.

4.  Hver mál­aði Monu Lisu?

5.  Hvernig litt er núllið á rúl­lettu­hjóli?

6.  James Hoban hét maður, sem fædd­ist árið 1755 í Kilkenny-hér­aði á Írlandi. Hann gerð­ist arki­tekt og frægð hans varð mest árið 1792 þegar hann vann sam­keppni um að teikna hús, sem átti eftir að verða heldur betur sögu­frægt. Hvaða hús var það?

7.  Hver leik­stýrði kvik­mynd­unum Kill Bill, fyrsta og öðrum hluta?

8.  Blái eng­ill­inn er kvik­mynd sem frum­sýnd var 1930 í Þýska­landi og gerði aðal­leikkonu sína heims­fræga. Hver var hún?

9.  Þótt hákarlar séu stórir og ill­úð­legir hafa þeir í raun­inni ekki bein í nef­inu, heldur ... hvað?

10.  Kona ein fædd­ist 1717 og rúm­lega tví­tug varð hún fyrst drottn­ing í Bæheimi og síðar í Króatíu og Ung­verja­landi.  Auk þess varð hún erki­her­toga­ynja í Aust­ur­ríki og loks keis­ara­ynja yfir því sem kallað var heilaga róm­verska ríkið, en við erum nú vön að kalla Habs­borg­ara­ríkið um þær mundir. Hún var eina konan sem stýrði því. Hvað hét hún?

***

Síðari auka­spurn­ing:

Græja, eins og sú sem sést á mynd­inni hér að neðan, var lengst af til á öllum sveita­bæjum á Íslandi. Hvað er þetta?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Regn­boga­fáni hinsegin fólks.

2.  Little Big Horn.

3.  Tȟatȟáŋka Íyotake sem er kall­aður Sitting Bull á ensku og Tȟašúŋke Witkó, eða Crazy Horse.

4.  Leonardo.

5.  Grænt.

6.  Hvíta húsið í Washington í Banda­ríkj­unum.

7.  Tar­antino.

8.  Marlene Dietrich.

9.  Brjósk.

10.  María Teresa.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er hluti af Stjörnu­nótt eftir Vincent van Gogh.

Í heild er mál­verkið svona.

Á neðri mynd­inni er skil­vinda. Hún var notuð til að „skilja“ nýmjólk úr kúnum og rann úr henni und­an­renna ann­ars vegar en rjómi hins vegar.

***

Og svo eru það hlekkirnir hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár