426. spurningaþraut: Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel safhalarında parasızdır — já?!

426. spurningaþraut: Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel safhalarında parasızdır — já?!

Hlekki á næstu þrautir má finna allra neðst, þið vitið það núorðið, er það ekki?

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Hver er karl­inn á mynd­inni hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Borg ein stór og mikil heitir São Paulo. Í hvaða landi er hún?

2.  Adolf Hitler var þræl­menni mikið og bar ábyrgð á dauða millj­óna manna í síð­ari heims­styrj­öld. Í fyrri heims­styrj­öld var hann her­maður á vest­ur­víg­stöðv­unum. Þrátt fyrir allt er þó aðeins vitað með vissu til að hann hafi skotið per­sónu­lega eina mann­eskju. Hver var sú?

3.  Við hvern er Ing­ólfs­höfði kenndur?

4.  Land eitt í Evrópu heitir Hrvatska því tungu­máli, sem talað er í land­inu. En hvað köllum við landið Hrvatska?

5.  Ákveðin teg­und af áfengi er eða virð­ist að minnsta kosti vera kennd við evr­ópska kon­ungs­ætt, sem ríkti í mörg hund­ruð ár með pompi og prakt. Hver er sú?

6.  Hver er vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins?

7.  Hvaða fyr­ir­bæri er oft­ast átt við með orð­inu „mastiff“?

8.  The Jackson 5 var eða kannski er banda­rísk hljóm­sveit sem stofnuð var um 1965 af manni að Joe Jackson og sonum hans. Hvað hét sá lang­fræg­asti þeirra bræðra?

9.  Tvær systur bræðr­anna tóku einnig þátt í söng­skemmt­unum þeirra, auk þess sem þær létu að sér kveða í eigin nafni. Nefnið aðra þeirra.

10.  Eft­ir­far­andi texti er úr stjórn­ar­skrá ákveð­ins ríkis og kveður á um að allir skuli njóta mennt­unar. En hvaða ríki skyldi það vera? — Her şahsın öğrenim hakkı var­dır. Öğrenim hiç olmazsa ilk ve temel saf­hal­arında parasızdır. İlk öğretim mecburidir. Teknik ve mesleki öğretim­den herkes istifade edebil­meli­dir. Yüksek öğretim, liyakatlerine göre herkese tam eşit­likle açık olmalıdır.

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heitir per­sónan á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Brasilíu.

2.  Adolf Hitler.

3.  Ingólf Arnarson.

4.  Króatía.

5.  Bourbon í Frakk­landi.

6.  Þórdís Kolbrún.

7.  Hunda­teg­und.

8.  Michael.

9.  LaToya og/eða Janet.

10.  Tyrkland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni er Joseph Ratzinger, öðru nafni Benedikt 16. Hvort heldur nafnið er rétt, en „gamli páf­inn“ dugar hins vegar ekki!

Á neðri mynd­inni er Wilma Flint­stone.

***

Og gáið svo að hlekkj­unum hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár