427. spurningaþraut: Hvaða listamaður málaði þessa mynd?

427. spurningaþraut: Hvaða listamaður málaði þessa mynd?

Athugið að hlekki á fleiri þrautir er að finna hér neðst.

En fyrri auka­spurn­ing hljóðar svo:

Hvaða lista­maður bjó til verkið hér að ofan?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Tindur einn á Öræfajökli er hæsti punktur Íslands. Hvað heitir tind­ur­inn?

2.  Annar tindur á þeim sama jökli er næst­hæsti punktur Íslands. Hvað heitir hann?

3.  Hvað er alþjóða­heitið yfir haka­kross­inn sem bæði þýski nas­ista­flokk­ur­inn og Eim­skipa­fé­lag Íslands not­uðu á sínum tíma?

4.  Og úr hvaða tungu­máli er það orð runnið?

5.  Fyrir hvaða flokk situr Jón Steindór Valdi­mars­son á þingi?

6.  Helen Parr heitir kona ein, sem átti sér ævin­týra­legan feril, en svo sett­ist hún í helgan stein ásamt eig­in­manni og þremur börnum. Þegar fjöl­skyld­unni var ógnað af ill­menni einu miklu, þá tók hún aftur fyrri háttu og teygði ræki­lega á sér í þágu fjöl­skyld­unnar. Árið 2004 var gerð kvik­mynd um ævin­týri fjöl­skyld­unnar og hlaut hún mikla aðsókn og við­ur­kenn­ingar. Frú Parr teygði sig svo til frama á ný í annarri bíó­mynd 2018. Hvað hét fyrri myndin?

7.  Margir leik­arar gerðu garð­inn frægan í sjón­varps­s­er­í­unni Baywatch sem hóf göngu sína 1989. Ein leik­kona varð þó sér­lega fræg fyrir hlut­deild sína að sjón­varps­þáttum þessum. Hver var sú?

8.  Botnía — fyrir hvað stendur það orð í íslenskri sögu á ofan­verðri 19. öld og fram á þá 20.?

9.  En hvar er Botn­íu­flói? — sem reyndar er oft­ast kall­aður öðru nafni, en þó svip­uðu, á íslensku.

10.  Georgia Hoff-Hansen var dönsk og fædd­ist árið 1884. Hún flutt­ist hingað til lands um eða upp úr 1908 og varð með tím­anum ein fræg­asta kona lands­ins. Þar naut hún eigin verð­leika en þó ekki síður eig­in­manns­ins. Hvað var helsta hlut­verk Georgiu á Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hvað heita dýrin á mynd­inni hér að neðan?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Hvanna­dals­hnjúkur.

2.  Sveins­tindur.

3.  Svastika.

4.  Sanskrít. „Ind­verska“ dugar ekki, enda ekk­ert tungu­mál til sem heitir nákvæm­lega það.

5.  Viðreisn.

6.  The Incredibles.

7.  Pamela Anderson.

8.  Farþega- og flutn­inga­skip sem sigldi milli Íslands og umheims­ins í ára­tugi.

9.  Í Eystra­salti — yfir­leitt nefndur Hels­ingja­botn á opin­berum plöggum íslenskum.

10.  Hún var fyrsta for­seta­frú Íslands.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri mynd­ina gerði norski lista­mað­ur­inn Thor­björn Egner.

Hún sýnir per­sónum úr nokkrum leik­verka hans.

Á með­fylgj­andi mynd má sjá þær fleiri.

Á neðri mynd­inni er hins vegar pokarotta.

***

Gáið að hlekkj­unum á fyrri (og seinni) þrautir hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár