428. spurningaþraut: Hvar eru framin 52 morð á hverja 100.000 íbúa á ári?!

428. spurningaþraut: Hvar eru framin 52 morð á hverja 100.000 íbúa á ári?!

Þið vitið núorðið, er það ekki, að hlekkir á nálægar þrautir er að finna hér allra neðst?

***

Fyrri auka­spurn­ing:

Mál­verkið hér að ofan sýnir fund tveggja manna í kjöl­far mik­illar og örlaga­ríkrar orr­ustu árið 1870. Hvað heita þessir menn? Nefna verður báða.

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hver var við­skipta­ráð­herra í fyrri rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur árið 2009?

2.  En hver var umhverf­is­ráð­herra í þeirri sömu stjórn?

3.  Í hvaða landi er borgin Kraków?

4.  Hver skrif­aði smá­sög­una Morðin við Rue Morgue, sem stundum er kölluð fyrsta leynilög­reglu­sagan?

5.  Hvað hét visku­gyðja Forn-Grikkja?

6.  Hvað hét lang­fræg­asta land­náms­kona Íslands sam­kvæmt fornum heim­ildum?

7.  Hvar á land­inu sett­ist hún að?

8.  Önnur land­náms­kona hét Þuríður sunda­fyllir. Hvar nam hún land?

9.  Hvaða jurt er sagt að blóðsugur eins og Dracula ótt­ist mjög?

10.  Í landi einu, frekar litlu (einn fimmti af Íslandi), voru framin 3.340 morð árið 2018, sem þýddi að landið — eins og oft­ast, því miður — efst á lista yfir hlut­falls­legan fjölda morða í land­inu. Þar eð íbúar í land­inu eru tæpar sjö millj­ónir þýddi þetta að hið til­tekna ár voru 52 af hverjum 100.000 íbúum myrtir. Sam­svar­andi morð­æði á Íslandi hefði þýtt að nærri 200 manns væru féllu fyrir morð­ingja­hendi á hverju ári. Hvaða land er svona hættu­legt?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Á vef Nátt­úru­fræði­stofn­unar fann ég þessa ljós­mynd Arnþórs Garð­ars­sonar og stóðst ekki mátið að fá hana „lán­aða“ og spyrja:

Hvar er hún tekin?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Gylfi Magn­ús­son.

2.  Kolbrún Hall­dórs­dóttir.

3.  Póllandi.

4.  Poe.

5.  Aþena.

6.  Auður djúpúðga. Stundum er hún þó kölluð Unnur.

7.  Í Dölum.

8.  Í Bol­ung­ar­vík.

9.  Hvítlauk.

10.  El Salvador.

***

Á efri mynd­inni ræð­ast þeir við hinn sigr­aði Napoleon 3. keis­ari og Bismarck kansl­ari Prúss­lands (síðar Þýska­lands). Í orr­ust­unni við Sedan gjörsigr­uðu Þjóð­verjar Frakka.

Neðri myndin er tekin í Hval­firði.

***

Og lítið svo á hlekk­ina hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár