429. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði!!

429. spurningaþraut: Hér er lárviðarstig í boði!!

Fyrri auka­spurn­ing:

Á teikn­ing­unni hér að ofan má sjá þann atburð þegar bylt­ing­ar­sam­tökin Þjóð­ar­vilj­inn tóku af lífi þjóð­höfð­ingja í landi einu árið 1881. Í hvaða landi?

***

Aðal­spurn­ingar:

1.  Hvað hét þjóð­höfð­ing­inn sem Þjóð­ar­vilj­inn myrti árið 1881?

2.  Hvaða fyr­ir­bæri er Old Bailey?

3.  Eitt af fræg­ustu leik­skáldum Banda­ríkj­anna á 20. öld hét skírn­ar­nafn­inu Thomas og fædd­ist í rík­inu Miss­issippi. Hann tók sér hins vegar skáld­safn sem virt­ist gefa til kynna að hann væri upp­runn­inn ann­ars staðar. Hvað kall­aði hann sig?

4.  Hvaða Afr­íku­ríki nær lengst í vestur?

5.  En í austur?

6.  Hver var þriðji for­seti Íslands?

7.  Hvaða íslenska nátt­úru­fyr­ir­bæri er orðið sam­heiti yfir öll sams konar nátt­úru­fyr­ir­bæri í heim­inum, að minnsta kosti í flestum Evr­óputungum?

8.  Aliette Opheim heitir sænsk leik­kona, fædd í Täby við Stokk­hólm árið 1985. Af hverju er ég að spyrja um hana hér?

9.  Hvaða leik­sýn­ing sóp­aði að sér Grímu­verð­launum á dög­unum?

10.  Og hver fékk Grímu­verð­launin fyrir að leik­stýra þeirri sýn­ingu?

***

Síðari auka­spurn­ing.

Fáninn hér að neðan er með þeim ósköpum að tvö ríki í heim­inum, hvort í sinni heims­álfu nota hann sem þjóð­fána sinn. Munur á lit og breidd rand­anna þriggja er svo lít­ill að eng­inn tekur í raun eftir því, og því eru fán­arnir í raun eins. Nefnið annað ríkj­anna, sem nota fán­ann. Ef þið þekkið bæði, þá meg­iði sæma ykkur lár­við­ar­stigi!

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Alex­ander 2.

2.  Frægt dóm­hús í London.

3.  Tennessee Williams.

4.  Græn­höfða­eyjar.

5.  Mauritius.

6.  Kristján Eldjárn.

7.  Geysir.

8.  Af því hún lék í Kötlu.

9.  Vertu úlfur.

10.  Unnur Ösp.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Morðið var framið í Rúss­landi.

Fáninn er not­aður í Evr­ópu­rík­inu Rúmeníu og Afr­íku­rík­inu Tjad.  

***

Hér fyrir neðan eru svo hlekkir á fleiri spurn­inga­þrautir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár