430. spurningaþraut: Ímyndaðir staðir

430. spurningaþraut: Ímyndaðir staðir

Þessi þraut snýst öll um ímynd­aða staði.

Fyrri auka­spurn­ing um mynd­ina hér að ofan:

Hvað heitir landið þess­ara bræðra?

***

Aðal­spurn­ingar!

1.  Óseyri við Axl­ar­fjörð er ekki til, nema í bók. En hver er ótví­rætt þekkt­asti íbúi þar?

2.  Amer­ískur reyfara­höf­undur skrif­aði fjölda skáld­sagna þar sem fjallað er um lög­reglu­sveit í 87. hverfi í borg­inni Isola, sem ekki mun finn­ast á neinu korti. Meðal lög­reglu­mann­anna eru Steve Carella, Meyer Meyer, Cotton Hawes, Bert Kling og Fat Ollie. Hvað hét höf­und­ur­inn sem skap­aði þetta hverfi í hinni ímynd­uðu Isola?

3.  Gríski heim­spek­ing­ur­inn Platon segir í tveimur verkum sínum frá fornu menn­ing­ar­ríki sem hafi verið til fyr­ir­myndar að ýmsu leyti hvað snertir stjórn­sýslu og þess háttar. Hvað kall­aði hann ríki þetta?

4.  Annar heim­spek­ingur, hinn enski Thomas More, bjó líka til eins­konar fyr­ir­mynd­ar­ríki sem hann vildi (senni­lega) að menn hefðu til eft­ir­breytni. Hvað kall­að­ist ríki hans?

5.  Sögur miklar hafa gengið um Artúr kon­ung á Bret­landi og ridd­ara hans sem tylltu sér við hring­borð eitt mikið, þá þeir voru ekki að bjarga ungum dömum úr dreka­klóm eða leita að hinum heilaga kaleik. Í hvaða borg var hring­borð þetta?

6.  Tatooine heitir pláneta ein, langt langt í burtu. Hún kemur oft við sögu í einum miklum bálki skáld­verka af ákveðnu tagi, og að minnsta kosti tvær af aðal­per­són­unum eru bein­línis þaðan. Hvaða bálkur er þetta?

7.  Hvað heitir heims­álfan þar sem mestur hluti af sagna­bálknum um krúnu­leik­ana ger­ist?

8.  Hvaða ímynd­aða land bjó L.Frank Baum til árið 1900?

9.  En hver skap­aði hið skelfi­lega land Mordor?

10.  Í um hund­ruð ár (1550-1650) þvæld­ist ímynduð eyja um kort af Norður-Atl­ants­haf­inu. Hún var yfir­leitt sýnd suður af Græn­landi eða spöl­korn suð­vestur af Íslandi. Stærð hennar var mis­mun­andi og mjög mis­jöfnum sögum fór af byggð á henni. Loks rann þó upp fyrir mönnum að til­vist hennar var þjóð­saga ein og eyjan hvarf af landa­kortum. Hvað hét þessi ímynd­aða eyja skammt frá Íslandi?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Hér að neðan má sjá eyju sem kemur við sögu í mjög frægum reyfara sem út kom fyrir um 60 árum og sló ræki­lega í gegn, ekki síst á Íslandi. Bækur höf­und­ar­ins seld­ust síðan eins og heitar lummur á Íslandi í hálfan annan ára­tug. Nafn eyj­ar­innar úr þess­ari til­teknu bók kemur fyrir í sjálfum titli reyfar­ans. Hvað nefndi reyfara­höf­und­ur­inn þessa eyju sína?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Salka Valka.

2.  Ed McBain.

3.  Atlantis.

4.  Utopia.

5.  Camelot.

6.  Star Wars.

7.  Westeros.

8.  Oz.

9.  Tolkien.

10.  Frísland.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Á efri mynd­inni eru bræð­urnir Ljóns­hjarta úr sögu Astrid Lindgren. Nangíala hét landið þeirra.

Á neðri mynd­inni má sá eyj­una Navarone úr skáld­sög­unni Byss­urnar í Navarone eftir Alistair MacLean.

***

Og svo eru hlekkir hér að neðan!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár