Mál Bjarna Ben bíður enn afgreiðslu ákærusviðs

Sótt­varn­ar­brot í Ásmund­ar­sal á Þor­láks­messu, þar sem Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra var meðal gesta, bíður enn afgreiðslu á ákæru­sviði lög­reglu. Tíu mál er varða sótt­varn­ar­brot hafa beðið í meira en fjóra mán­uði. Einn virkur dagur er þar til málið kemst í þann flokk.

Mál Bjarna Ben bíður enn afgreiðslu ákærusviðs

Samkoma í Ásmund­ar­sal að kvöldi Þor­láks­messu, sem sótt var af Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra, er eitt þeirra sótt­varn­ar­brota sem enn bíða afgreiðslu á ákæru­sviði lög­reglu.

Hulda Elsa Björg­vins­dóttir, sviðs­stjóri ákæru­sviðs­ins, segir í sam­tali við Stundina að eins og staðan sé núna megi vænta þess að málið verði afgreitt á næstu vikum. Það verði gert innan þess ramma sem sviðið hefur sett sér að afgreiða slík brot, sem eru fjórir mán­uðir.

Lögregla sendi málið til ákæru­sviðs í lok jan­úar svo einn virkur dagur er til stefnu ef klára á málið innan þessa ramma. 

Þegar Stundin spurð­ist fyrir um málið í byrjun apríl feng­ust þau svör að „þús­undir mála“ væru í rann­sókn og biðu afgreiðslu ákæru­sviðs­ins. „[O]g það er ekk­ert óeðli­legt við það þótt þau séu ein­hverja mán­uði, jafn­vel ár til með­ferðar,“ sagði Hulda Elsa þá. 

„Við höfum reynt að afgreiða sótt­varn­ar­brot innan 4 mán­aða en vegna mik­ils álags á emb­ætt­inu, og …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigð­is­kerf­inu

Enginn á Íslandi hefur lifað af jafn alvar­legan mænu­skaða og Katla Guðna­dóttir sem lenti í dul­ar­fullu bílslysi 22 ára gömul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerfið hefur ekki afgreitt beiðni hennar um heima­þjón­ustu. Barátta hennar hefur þegar skilað for­dæma­lausri ákvörðun í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líður henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lifað slysið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár