Kaupfélagið gefur Skagaströnd fasteignir útgerðarfélagsins eftir að hafa hætt rekstri þar og fært kvótann í burtu

Kaup­fé­lag Skag­firð­inga var gagn­rýnt fyrir að flytja útgerð­ar­starf­semi sína frá Skaga­strönd. Útgerð­ar­armur kaup­fé­lags­ins hefur nú gefið Skaga­strönd þrjár fast­eignir sem voru í eigu útgerð­ar­fé­lags­ins í þorp­inu. Þórólfur Gíslason kaup­fé­lags­stjóri segir að félagið vilji láta gott af sér leiða á Skaga­strönd.

Kaupfélagið gefur Skagaströnd fasteignir útgerðarfélagsins eftir að hafa hætt rekstri þar og fært kvótann í burtu
Kaup­fé­lagið vill láta gott af sér leiða á Skaga­strönd Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri KS, og Bjarni Mar­ons­son, stjórn­ar­for­maður í FISK Seafood, voru tveir af þeim aðilum sem und­ir­rit­uðu gjafa­af­sal FISK Seafood þar sem félagið gefur Skaga­strönd umræddar fast­eignir.

Útgerð­ar­fé­lag Kaup­fé­lags Skag­firð­inga, FISK Seafood, hefur gefið sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­strönd þrjár fast­eignir í þorp­inu sem áður voru í eigu útgerð­ar­fé­lags­ins Skag­strend­ings. Kaup­fé­lagið keypti Skag­strend­ing af fjár­fest­ing­ar­fé­lagi Eimskipa árið 2004 og skrif­aði þá undir vilja­yf­ir­lýs­ingu um að halda áfram að styðja við atvinnu­lífið í pláss­inu, meðal ann­ars með því að gera togar­ann Arnar áfram út þaðan. Þegar kaup­fé­lagið keypti Skag­strend­ing gerði útgerðin út tvo tog­ara frá Skaga­strönd, rak rækju­vinnslu í þorp­inu og átti 8 þús­und tonna kvóta.

Meðal þeirra tveggja bygg­inga sem kaup­fé­lagið nú gefur sveit­ar­fé­lag­inu Skaga­strönd eru gömlu síldar- og rækjus­verk­smiðj­urnar sem Skag­strend­ingur átti og þriðja fast­eignin er skrif­stofu­bygg­ing sem meðal ann­ars hýsir skrif­stofur sveit­ar­fé­lags­ins. For­svars­menn kaup­fé­lags­ins gáfu þessar eignir með gjafa­af­sali þann 17. mars síð­ast­lið­inn en sagt var frá gjöf­inni í Morg­un­blað­inu, blaði sem Kaup­fé­lag Skag­firð­inga á meira en 20 pró­senta hlut í, fyrir páska. 

„Við vilj­um með þessu láta gott af okk­ur leiða …
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár