Stundin tilnefnd til blaðamannaverðlauna í tveimur flokkum

Blaða­menn Stund­ar­innar eru til­nefndir til verð­launa fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins og fyrir við­tal árs­ins. Rík­is­út­varpið fær flestar til­nefn­ingar, fjórar tals­ins.

Stundin tilnefnd til blaðamannaverðlauna í tveimur flokkum
Tilnefnd til tveggja verð­launa Hlédís Maren er til­nefnd til verð­launa fyrir við­tal árs­ins og þeir Bjartmar og Freyr fyrir rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins.

Frétta­menn Rík­is­út­varps­ins eru til­nefndir til fernra blaða­manna­verð­launa í þremur flokkum fyrir umfjöll­un­ar­efni árs­ins 2020. Þar á eftir koma frétta­menn frétta­stofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar en þeir hljóta þrjár til­nefn­ingar í þremur flokkum. Stundin er til­nefnd til tveggja blaða­manna­verð­launa í tveimur flokkum. Morg­un­blaðið, DV og Kjarninn hljóta eina til­nefn­ingu hver fjöl­mið­ill.

Hlédís Maren Guð­munds­dóttir, blaða­maður Stund­ar­innar, er til­nefnd til verð­launa fyrir við­tal árs­ins. Viðtal Hlédísar var við fjórar ungar íslenskar konur sem eiga rætur sínar að rekja til Asíu. Í við­tal­inu lýstu þær kyn­ferð­is­legum kyn­þátta­for­dómum sem þær hafa orðið fyrir, allt frá því þær voru á grunn­skóla­aldri.

Freyr Rögn­valds­son og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, blaða­menn Stund­ar­innar, hljóta til­nefn­ingu til verð­launa í flokki rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins. Til­nefn­ing­una hljóta þeir fyrir frétta­flutn­ing af plast­mengun í Krýsuvík vegna dreif­ingar umhverf­is­fyr­ir­tæk­is­ins Terra á moltu þar á svæð­inu. Terra var valið umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins árið 2020.

Blaða­manna­fé­lag Íslands veitir árlega blaða­manna­verð­laun í fjórum flokkum, umfjöllun árs­ins, við­tal árs­ins, rann­sókn­ar­blaða­mennsku árs­ins og blaða­manna­verð­laun árs­ins. Frá stofnun Stund­ar­innar árið 2015 hafa blaða­menn hennar verið til­nefndir fimmtán sinnum til blaða­manna­verð­laun­anna. Fimm sinnum hafa blaða­manna­verða­lunin fallið blaða­mönnum Stund­ar­innar í skaut. Blaða­manna­verða­launin fyrir árið 2020 verða veitt næst­kom­andi föstu­dag, 26. mars.

Hér má sjá til­nefn­ing­arnar í heild sinni:

Umfjöllun ársins

  • Birta Björns­dóttir og Guð­mundur Björn Þor­björns­son, RÚV.  Fyrir fjöl­breytta, aðgengi­lega og upp­lýsandi umfjöllun af erlendum vett­vangi sem vakið hefur athygli í þátt­unum Heimskviðum.
  • Erla Björg Gunn­ars­dóttir og Nadine Guðrún Yaghi, Frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir áhrifa­mikla og afhjúp­andi umfjöllun Kompáss um dul­inn vanda kvenna með þroska­hömlun sem leiðst hafa út í vændi.
  • Sunna Ósk Loga­dóttir, Bára Huld Beck, Þórður Snær Júl­í­us­son, Arnar Þór Ing­ólfs­son og Jónas Atli Gunn­ars­son, Kjarn­anum.  Fyrir vand­aða og yfir­grips­mikla umfjöllun um elds­voð­ann á Bræðra­borg­ar­stíg 1 og marg­hátt­aðar afleið­ingar hans.

Viðtal ársins

  • Erla Hlyns­dóttir, DV.  Fyrir áhrifa­mikið við­tal við Elísa­betu Ron­alds­dóttur þar sem lýst er alvar­legu ofbeldi í nánu sam­bandi.
  • Hlédís Maren Guð­munds­dóttir, Stund­inni. Fyrir við­tal við fjórar ungar íslenskar konur sem eiga rætur að rekja til Asíu og lýsa kyn­ferð­is­legum kyn­þátta­for­dómum í sinn garð allt frá grunn­skóla­aldri. 
  • Orri Páll Orm­ars­son, Morg­un­blað­inu. Fyrir við­tal við Ingva Hrafn Jónsson þar sem hann ræðir um and­lát bróður síns og þá ákvörðun hans að þiggja dán­ar­að­stoð.

Rannsóknarblaðamennska ársins

  • Aðal­steinn Kjart­ans­son, Helgi Seljan og Stefán Drengs­son, RÚV. Fyrir frétta­skýr­ing­ar­þátt um afdrif tveggja gáma­flutn­inga­skipa sem Eimskip seldi í gegnum milli­lið til nið­ur­rifs í Indlandi þvert á evr­ópsk lög.
  • Freyr Rögn­valds­son og Bjartmar Oddur Þeyr Alex­and­ers­son, Stund­inni. Fyrir frétta­flutn­ing um plast­mengun í Krýsuvík vegna moltu­dreif­ingar umhverf­is­fyr­ir­tæk­is­ins Terra sem Samtök atvinnu­lífs­ins valdi umhverf­is­fyr­ir­tæki árs­ins 2020. 
  • Nadine Guðrún Yaghi, Frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir að afhjúpa umfangs­mikil og afdrifa­rík mis­tök sem gerð voru við grein­ingar á leg­háls­sýnum hjá Leit­ar­stöð Krabba­meins­fé­lags­ins. 

Blaðamannaverðlaun ársins

  • Hólm­fríður Dagný Frið­jóns­dóttir, RÚV.  Fyrir umfjöllun um atvinnu­leysi þar sem tekið var á sál­rænum, félags­legum og fjár­hags­legum afleið­ingum þess í skugga heims­far­ald­urs COVID-19. 
  • Sunna Karen Sig­ur­þórs­dóttir, Frétta­stofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgj­unnar. Fyrir yfir­grips­miklar og áhrifa­ríkar fréttir sem fluttar voru beint af vett­vangi af aur­skrið­unum á Seyð­is­firði og afleið­ingum þeirra. 
  • Þór­hildur Þor­kels­dóttir, RÚV. Fyrir vönduð frétta­tengd við­töl þar sem sjónum er beint að ein­stak­lingum í erf­iðum aðstæðum.

Fyr­ir­vari: Hér er fjallað um mál er varða Stundina með beinum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár