Rasískt kynferðisofbeldi gegn konum af asískum uppruna

Stundin ræddi við fjórar íslenskar konur af asískum upp­runa, Díönu Katrínu Þor­steins­dóttur, Donnu Cruz, Önnu Jia og Dýrfinnu Benitu, sem eiga það sam­eig­in­legt að hafa lent í rasísku kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legum ras­isma frá því þær voru á grunn­skóla­aldri. Þær segja þol­in­mæð­ina að þrotum komna og vilja skila skömminni þar sem hún á heima.

Rasískt kynferðisofbeldi gegn konum af asískum uppruna
Díana Katrín, Dýrfinna Benita, Donna Cruz og Anna Jia Konurnar deila reynslu sinni af rasísku kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legum ras­isma sem þær hafa upp­lifað frá því á grunn­skóla­aldri.

Díana Katrín Þor­steins­dóttir, Donna Cruz, Anna Jia og Dýrfinna Benita, ungar íslenskar konur af asískum upp­runa, ræddu við Stundina um reynslu sína af rasísku kyn­ferð­is­of­beldi og kyn­ferð­is­legum ras­isma, sem stað­al­mynd asísku vænd­is­kon­unnar við­heldur og normalíserar. Dýrfinna lýsir rasískri kyn­ferð­is­legri áreitni sem hélt henni í ótta á grunn­skóla­ár­unum: „Ég var oft mjög hrædd í skól­anum. Það var hópur af strákum sem var alltaf að hóta að hópnauðga mér og berja mig ef þeir sæju mig utan skól­ans. Ég þurfti líka alltaf að heyra að mamma mín væri keypt og ég væri taí­lensk mella.“

Anna Jia segir ábyrgð hinna full­orðnu vera mikla, þar sem þessi teg­und ras­isma sé ekki sjálf­sprottin úr hug­ar­heimi barna. „Tíu ára börn eru að koma upp að þeim og segja að mamma þeirra sé hóra af hrís­grjóna­akri í Taílandi sem hafi verið flutt inn til lands­ins í gám af pabba þeirra sem sé mellu­dólgur. Það er ekk­ert …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár