Varar við vopnavæðingu lögreglunnar

Þing­maður Pírata segir að lög­reglan hefði ekki getað komið í veg fyrir ban­væna skotárás í Bústaða­hverf­inu um helg­ina með auknum vopna­burði. Fjórir hafa verið hand­teknir til við­bótar vegna máls­ins.

Varar við vopnavæðingu lögreglunnar
Olga Margrét Cilia Þing­maður Pírata varar við vopna­væð­ingu lög­regl­unnar. Mynd: Píratar

„Hefði frek­ari vopna­væð­ing lög­regl­unnar komið í veg fyrir skotárás­ina á laug­ar­dag­inn? Nei. Hefði aukið eft­ir­lit með lög­regl­unni, úttekt á starfs­um­hverfi hennar almennt, getað komið í veg fyrir atburð­inn á laug­ar­dag­inn? Ég kýs alla vega að trúa því.“

Þetta sagði Olga Margrét Cilia, þing­maður Pírata, á Alþingi í dag. Olga kvað sér hljóðs undir liðnum störf þings­ins til þess að ræða umræðu um vopna­burð lög­regl­unnar sem spratt upp í kjöl­far ban­vænnar skotárásar í Bústaða­hverf­inu á laug­ar­dags­kvöld. Erlendur karl­maður á fer­tugs­aldri var skot­inn til bana og er málið talið tengj­ast skipu­lagðri glæp­a­starf­semi. Fjórir voru hand­teknir og færðir í gæslu­varð­hald vegna máls­ins og í dag til­kynnti lög­reglan að fjórir til við­bótar hefðu verið hand­teknir í aðgerðum í gær.

Sigríður Björk Guð­jóns­dóttir rík­is­lög­reglu­stjóri sagði í Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni í gær að vopna­reglur lög­regl­unnar verði ræddar á fundi lög­reglu­ráðs á morgun. Þá sagði Vil­hjálmur Árnason, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks, í sama þætti á mánu­dag að þjálfa þurfi almenna lög­reglu­menn í að vopn­bú­ast.

„Ég vona að lög­reglan sé ekki að fara að nota þann sorg­lega atburð sem lóð á vog­ar­skálar fyrir þeim mál­flutn­ingi að vopna­væða lög­regl­una enn frekar,“ sagði Olga Margrét á Alþingi í dag. „Lög­reglan var hvergi nálægt þegar skotárásin átti sér stað svo það myndi skila litlu að nýta árás­ina í að und­ir­byggja mál­flutn­ing um frek­ari vopna­kaup lög­reglu. Í svari inn­an­rík­is­ráð­herra við fyr­ir­spurn um vopna­eign lög­regl­unnar frá 2015 kemur fram að lög­reglan átti þá sam­tals 590 vopn. Á tíma­bil­inu 1. jan­úar 2015 til 10. júní 2020 voru keypt 188 vopn til við­bótar. Lög­reglan er því vopna­vædd og því spurn­ing hvort ekki þurfi að auka eft­ir­lit með núver­andi vopna­eign í stað þess að auka fjölda vopna.“

„Þá erum við komin ansi nálægt því að búa í lög­reglu­ríki“

Þing­mað­ur­inn sagði frek­ari vopna­væð­ingu lög­regl­unnar ekki leysa nein vanda­mál. „Ég vona að þing­heimur átti sig á því þegar pressan frá lög­regl­unni kemur inn fyrir dyr með miklum krafti,“ sagði Olga Margrét. „Hvað varðar heim­ildir lög­reglu til að rann­saka skipu­lagða starf­semi megum við ekki gleyma því að aðgerðir lög­reglu fela í sér inn­grip í frið­helgi einka­lífs og það er ekki að ástæðu­lausu að heim­ildum lög­reglu til að grípa inn í einka­líf ein­stak­linga séu settar skorður. Yfirmenn lög­regl­unnar telja að á Íslandi séu slak­ari reglur varð­andi vald­heim­ildir lög­reglu miðað við sam­starfs­lönd. Það þarf ekki endi­lega að vera slæmt ef við skoðum málið með rétt­indi ein­stak­linga í for­grunni. Lög­reglan, eins og önnur stjórn­völd, má aldrei fá óskor­aðar vald­heim­ildir til eins eða neins. Þá erum við komin ansi nálægt því að búa í lög­reglu­ríki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár