Andstyggilega fréttaskýringu heyrði ég í Speglinum í Ríkisútvarpinu á þriðjudaginn var. Þar tók Arnar Páll Hauksson saman niðurstöður sem sérfræðingahópur á vegum ASÍ, BSRB og BHM hafði komist að eftir að hafa rannsakað efnahagsleg áhrif Covid-19, bæði þau sem þegar eru orðin og munu segja til sín í framtíðinni.
Andstyggileg var fréttaskýringin vegna þess að niðurstaðan – sem kynnt var af Vilhjálmi Hilmarssyni, hagfræðingi BHM, – var ekki aðeins sú að efnahagslega væri kófið „eitt mesta áfall sem fólk sem er lifandi í dag hefur upplifað“, heldur leggðist mjög greinilega þyngst á þá sem minnst mættu sín.
Þrisvar sinnum meiri samdráttur væri hjá lægstlaunuðu stéttunum nú en í fjármálahruninu 2008.
Konur og aðflutt fólk bæri sérstaklega þungar byrðar.
Hvar ætlum við að vera?
Og allra verst að þessi mikla Covid-kreppa hefði í för með sér að ójöfnuður í samfélaginu ykist.
Og var nú ekki á bætandi.
Arnar Páll ræddi við þær Drífu Snædal hjá ASÍ og Þórunni Sveinbjarnardóttur sem fóru vel yfir þessa hörmulegu stöðu, og Þórunn bætti svo við:
„[V]ið þurfum líka að vita hvernig við ætlum að vaxa út úr kreppunni, og þar hafa stjórnvöld bæði aðhaldshlutverk og líka hlutverk til að marka stefnuna fram á við. Við verðum að koma okkur saman um það hvar við ætlum að vera eftir 5, 10, 25 ár, við hvað við ætlum að starfa og hvernig við ætlum að tryggja jöfnuð og velferð í landinu.“
Þetta er algjört höfuðatriði. Ég má ekki til þess hugsa að mín kynslóð og sú næsta á eftir skilji eftir þjóðfélag í heljargreipum stéttaskiptingar, ójöfnuðar og misréttis. Það er þó það sem stefnir í.
Takið í taumana!
Á næsta ári verða kosningar. Þar VERÐUR að taka í taumana og snúa af þeirri braut skeytingarleysis um jöfnuð og réttlæti sem einkennt hefur núverandi ríkisstjórn.
Næsta ríkisstjórn á ekki að fást við föndur og bútasaum til að laga svona hitt og þetta, halda sjó að mestu og vera kurteis og dönnuð andspænis peningaöflum samfélagsins eins og ríkisstjórn Katrínar, Bjarna og Sigurðar hefur verið.
Næsta ríkisstjórn á að breyta svo rösklega til að snúið verði af braut þess ójöfnuðar sem við erum löngu komin inn á en kófið stefnir nú í að auka verulega.
Næsta ríkisstjórn á að sýna dug, kjark, róttækni og hún á að sýna auðvaldinu dónaskap, ef með þarf.
Nennir varla brauðmolunum
Ekki sýnir auðvaldið hinum kúguðu neina kurteisi. Varla að það nenni lengur að henda í þá brauðmolunum.
Næsta ríkisstjórn þarf að starfa í anda róttækrar og stoltrar jafnaðarstefnu.
Svo þegar búið er að rétta kúrsinn af, þá getum við farið aftur að föndra og deila um hvort kalla eigi köttinn svarthvítan eða gráan.
Nú er Samfylkingin að fara að velja sér þingmannsefni. Ég hef iðulega kosið þann flokk enda fer meginstefna hans stundum nærri minni lífsskoðun, sem er að gjalda samfélaginu það sem samfélagsins er en láta fólk annars að mestu í friði. Ég mun því fylgjast grannt með því hvort flokkurinn velur sér róttæklinga eða föndrara að þingmannsefnum.
Deilir ekki kjörum með alþýðunni
Í Íslenskri orðabók (segir snara.is) kemur fram að orðið „róttæklingur“ sé „fremur niðrandi“. Í minni orðabók er þó ekki svo. Til að ég kjósi þennan flokk þá þarf hann að velja sér í forystu róttæklinga sem eru til í að sýna auðvaldinu festu, ákveðni og fyllstu hörku.
Það er náttúrlega það sem ég á við með orðinu dónaskap, ekki svívirðingar og níð, ég vona að ég þurfi ekki að taka það fram.
Því þróunina til ójöfnuðar verður að stöðva.
Áður en það verður of seint.
Á alltof löngum tímabilum í íslenskri sögu var hér yfirstétt sem deildi í engu kjörum með alþýðu fólks. Sú þróun er í fullum gangi og hana VERÐUR að stöðva.
Athugasemdir