Dómurinn í máli Þorsteins Más getur haft fordæmisgildi í 18 sambærilegum málum

Seðla­banki Íslands aft­ur­kall­aði alls 19 ákvarð­anir um sektir vegna brota á gjald­eyr­is­hafta­lög­unum. Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur nú gert Seðla­banka Íslands að greiða Þor­steini Má Bald­vins­syni, for­stjóra Samherja, bætur vegna kostn­aðar hans við að sækja rétt sinn gagn­vart bank­anum. Dómurinn getur verið for­dæm­is­gef­andi fyrir aðra sem greiddu sektir.

Dómurinn í máli Þorsteins Más getur haft  fordæmisgildi í 18 sambærilegum málum
Ósigur og sigur Hér­aðs­dómur Reykja­víkur féllst ekki á skaða­bóta­kröfur Samherja gegn Seðla­banka Íslands en féllst hins vegar á skaða­bóta­kröfu Þorstein Más Bald­vins­sonar per­sónu­lega. Þor­steinn Már sést hér í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur í byrjun sept­em­ber þegar málin voru flutt. Mynd: Heiða Helgadóttir

Dómurinn í máli Þor­steins Más Bald­vins­sonar, for­stjóra Samherja, gegn Seðla­banka Íslands getur haft for­dæm­is­gildi í 18 sam­bæri­legum málum þar sem ein­stak­lingum og lög­að­ilum var gert að greiða fjár­sektir vegna brota á lögum um gjald­eyr­is­mál á árunum eftir hrunið. Umræddur dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur á föstu­dag­inn. 

Sekt­ar­greiðsl­urnar reynd­ust svo ekki hafa laga­stoð vegna mis­taka sem gerð voru haustið 2008 við setn­ingu reglna um gjald­eyr­is­mál þegar láð­ist að láta þáver­andi ráð­herra banka­mála stað­festa regl­urnar. Allar sekt­ar­greiðsl­urnar voru aft­ur­kall­aðar á þessum for­sendum.  

Eins og Stundin greindi frá í nóv­em­ber í fyrra aft­ur­kall­aði Seðla­banki Íslands alls 19 ákvarð­anir um sekt­ar­greiðslur vegna brota á lögum á um gjald­eyr­is­mál í apríl árið 2019. Um var að ræða: „Sjö ákvarð­anir í málum 11 lög­að­ila að fjár­hæð 40.685.000 kr. og 12 ákvarð­anir í jafn­mörgum málum ein­stak­linga að fjár­hæð 2.870.000 kr.,“ eins og sagði í svari Seðla­banka Íslands til Stund­ar­innar í nóv­em­ber 2019. 

Tveir af ein­stak­ling­unum sem sektir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjamálið

Hluthafar Samherja taka út milljarð í arð eftir uppskiptingu félagsins
FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
Almenningshlutafélag í stórri eigu Samherja kaupir í sölufyrirtæki Samherja
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár