Lögreglan fór gegn lögum í máli Aldísar Schram

Per­sónu­vernd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi ekki farið að lögum þegar Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri afhenti Jóni Baldvini Hanni­bals­syni per­sónu­upp­lýs­ingar um dóttur hans, Aldísi Schram.

Lögreglan fór gegn lögum í máli Aldísar Schram
Aldís Schram og Hörður Jóhann­es­son Per­sónu­vernd segir lög­reglu­stjór­ann á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ekki hafa farið að lögum. Mynd: Heiða Helgadóttir / Pressphotos.biz

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fór ekki að lögum þegar Hörður Jóhann­es­son aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri afhenti Jóni Baldvini Hanni­bals­syni, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, vott­orð um afskipti lög­regl­unnar af dóttur hans, Aldísi Schram. Þetta er nið­ur­staða Per­sónu­verndar sem var kveðin upp í úrskurði 27. ágúst.

Í vott­orð­inu sagði að lög­reglan hefði nokkrum sinnum á und­an­förnum árum haft afskipti af Aldísi eða sinnt verk­efnum vegna hennar. For­eldrar hennar, Jón Baldvin og Bryndís Schram, hafi hins vegar aldrei kallað til lög­reglu vegna hennar. Jón Baldvin birti úrdrátt úr vott­orð­inu opin­ber­lega, bæði í Silfrinu á RÚV og í Morg­un­blað­inu.

Í úrskurði Per­sónu­verndar kemur fram að lög­reglu­stjór­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið ábyrgð­ar­að­ili vinnslu þess­ara per­sónu­upp­lýs­inga. Mat Per­sónu­verndar er að vinnslan hafi farið fram án laga­heim­ildar. Ein­stak­lingar megi treysta því að upp­lýs­ingu sem lög­reglan skráir um verk­efni sem hún sinnir vegna þeirra verði ekki miðlað til óvið­kom­andi aðila.

„Í bréf­inu kemur einnig fram að ætla verði að við­tak­endur skjals­ins hafi verið for­eldrar kvart­anda“

Þá koma fram sjón­ar­mið lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í úrskurð­inum. „Í svar­bréfi lög­reglu­stjór­ans á höf­uð­borg­ar­svæð­inu kemur meðal ann­ars fram að umrætt bréf og þau gögn sem útgáfa þess byggði á hafi ekki verið varð­veitt í skjala­vörslu­kerfi emb­ætt­is­ins og að emb­ættið hafi ekki upp­lýs­ingar um for­sendur afgreiðsl­unnar. Því gæti emb­ættið ekki tekið afstöðu til beiðni Per­sónu­verndar um upp­lýs­ingar um umrædda vinnslu. Í bréf­inu kemur einnig fram að ætla verði að við­tak­endur skjals­ins hafi verið for­eldrar kvart­anda.“

Var ítrekað nauðungarvistuð á geðdeild

Aldísi hefur sex sinnum verið nauð­ung­ar­vi­stuð á geð­deild Land­spít­al­ans. Hefur hún borið föður sinn þeim sökum að hafa farið fram á vist­un­ina í kjöl­far ásak­ana um kyn­ferð­is­lega áreitni og ofbeldi. Hann hefur hafnað því. Fjórar beiðnir um nauð­ung­ar­vistun bár­ust frá honum á meðan hann var erlendis að störfum sem sendi­herra. 

Sjö konur stigu fram undir nafni í Stund­inni í fyrra og sök­uðu Jón Baldvin um kyn­ferð­is­lega áreitni. Alls hafa 23 konur birt sögur sínar á vef­síðu og bár­ust frá­sagnir í sér­stökum MeToo hópi kvenn­anna á Facebook. Jón Baldvin hefur ítrekað sagt að sög­urnar eigi allar rætur að rekja til veik­inda Aldísar dóttur sinnar, lýst því yfir að hún glími við geð­hvarfa­sýki og sagt að ásak­anir kvenn­anna allra séu „órar úr sjúku hug­ar­fari“ Aldísar. Þessu hefur hann haldið fram í blaða­greinum og við­tölum allt síðan árið 2012 þegar Guðrún Harð­ar­dóttir lýsti klúrum bréfa­skrifum hans til sín þegar hún var á tán­ings­aldri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

MeToo sögur um Jón Baldvin

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögnina
Fréttir

Dóttir Þóru: Stolt af því að hafa rofið þögn­ina

„Ég er stolt af því að hafa rofið þögn­ina með því að koma dag­bók mömmu á fram­færi sem og bréf­inu sem Jón Baldvin Hanni­bals­son sendi henni,“ segir Val­gerður Þor­steins­dóttir, dóttir Þóru Hreins­dóttur en Stundin fjall­aði um bréfið og dag­bók­ina á dög­unum. Pabbi Val­gerðar sem var í sam­búð með Þóru fyrir um fjöru­tíu árum, eig­in­kona hans og systir Val­gerðar segja að frið­helgi einka­lífs Þóru sé rofin og van­virt.
Þegar konur eru stimplaðar geðveikar
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
Leiðari

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir

Þegar konur eru stimpl­aðar geð­veikar

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing, frekar en geð­veiki dóttur minnar,“ voru við­brögð Jóns Baldvins við birt­ingu bréfa sem hann skrif­aði til ungrar stúlku í fjöl­skyld­unni. Í til­raun til að varpa athygl­inni frá sér benti hann á dóttur sína, sem svar­aði fyrir sig og var fyrir vikið dregin fyrir dóm af föður sínum. „Ég gat ekki sætt mig við að vera útmáluð geð­veik.“

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár