Bakarameistarinn kaupir Jóa Fel

Stefnt er á að opna tvö bak­arí aftur sem allra fyrst. Verið var að festa upp skilti Bak­ara­meist­ar­ans á fyrr­ver­andi höf­uð­stöðvum Jóa Fel í Holta­görðum fyrr í dag.

Bakarameistarinn kaupir Jóa Fel
Hyggjast opna sem fyrst Bak­ara­meist­ar­inn hefur keypt þrotabú Jóa Fel. Mynd: bakarameistarinn.is

Bak­arískeðjan Bak­ara­meist­ar­inn ehf. hefur keypt hluta af þrota­búi Jóa Fel og stefnt er að því að opna tvö útibú, í Holta­görðum og Spöng­inni, á næstu dögum. „Sem allra fyrst, von­andi bara í vik­unni,“ segir Sig­ur­björg Sig­þórs­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Bak­ara­meist­ar­ans aðspurð um tíma­setn­ingar opn­unar.

Bak­arís­rekstur Jóa Fel var lýstur gjald­þrota 23. sept­em­ber síð­ast­lið­inn þegar gjald­þrota­beiðni Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna var sam­þykkt í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Ástæða gjald­þrota­beiðn­ar­innar var að ekki höfðu verið greidd iðgjöld af launum hluta starfs­fólks í yfir ár, þó dregið hefði verið af launum þeirra.

Jóhannes Fel­ixs­son, Jói Fel, gerði til­raunir til að kaupa sjálfur þrotabú fyr­ir­tæk­is­ins, ásamt utan­að­kom­andi fjár­festum. Hann varð hins vegar að lúta í lægra haldi fyrir Bak­ara­meist­ar­anum. Gengið var frá kaup­unum í gær og er um að ræða rekstur tveggja bak­aría sem fyrr segir, í Spöng og Holta­görðum. Nú þegar er haf­inn und­ir­bún­ingur að opnun, meðal ann­ars var verið að setja upp skilti með merki Bak­ara­meist­ar­ans í Holta­görðum fyrr í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár